Framkvæmdir fari fram á þremur stöðum á Vesturlandsvegi. Í norðurátt frá Korpúlfsstaðarvegi standi framkvæmdir yfir frá klukkan 20 til 23 og þrengt verði í eina akrein fram hjá vinnusvæðinu.
Á Vesturlandsvegi í norðurátt frá Skarhólabraut munu framkvæmdir standa yfir frá 21 til 01:30 og verður umferð einnig þrengd í eina akrein fram hjá því vinnusvæði.
Malbikað verður á Vesturlandsvegi yfir Leirvogsá og mun umferð verða stýrt í gegnum vinnusvæðið og standa framkvæmdir frá 22:30 í kvöld fram til klukkan 07:00 í fyrramálið.
Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin séu þröng og menn og tæki séu við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.