Hundruð tyrkneskra lögreglumanna í óeirðabúnaði brutu sér leið inn í höfuðstöðvar CHP, helsta stjórnarandstöðuflokks landsins, í dag. Þeir notuðu táragas til að dreifa flokksmönnum sem stóðu vörð um skrifstofur flokksins.
Dómstóll kvað í vikunni upp þann úrskurð að kjör á forystu flokksins sem fram fór 2023 væri ógilt. Dómstóllinn sagði að Ozgur Ozel, sem vann kjörið, yrði að láta af völdum og rýma til fyrir Kemal Kilicdaroglu, forvera sínum. Úrskurðurinn er hluti af rannsóknum yfirvalda á stjórnarandstöðuflokknum.
Stuðningsmenn CHP brugðust ókvæða við og stóðu vörð um höfuðstöðvarnar. Þeir reyndu að byrgja alla innganga og koma í veg fyrir að forystan yrði borin út.
Tyrkneskir dómstólar hafa ítrekað kveðið upp dóma og úrskurði yfir stjórnarandstöðunni sem barist hefur gegn stjórn Tayyp Recep Erdogan, forseta Tyrklands. Mannréttindasamtök hafa gagnrýnt þetta og sagt stjórnvöld grafa undan lýðræði í landinu. Erdogan styrkti mjög tök sín á dómskerfi, lögreglu og menntakerfi eftir mislukkaða uppreisn hersins 2016.
Í fyrra var Ekrem Imamoglu, borgarstjóri í Istanbúl og væntanlegur mótframbjóðandi Erdogans í forsetakosningum eftir tvö ár, fangelsaður.
Ozel sagði á samfélagsmiðlum fyrr í dag að flokksmenn ætluðu hvergi að hreyfa sig. Síðar kom lögreglan og yfirtók höfuðstöðvarnar. Í millitíðinni höfðu stuðningsmenn gamla formannsins, Kilicdaroglu, reynt að komast inn á flokksskrifstofurnar.