Kærur vegna útboða hafa tafið byggingu þjóðarhallar og nýs Landspítala um hálft ár hið minnsta. Fjármálaráðherra hyggst leggja fram frumvarp í haust sem tekur meðal annars á kærum vegna opinberra framkvæmda.
Fjöldi kæra sami og í Danmörku
„Þetta er alls ekki viðunandi. Ef við berum saman málafjölda kærunefndar útboðsmála á Íslandi og í Danmörku þá er málafjöldinn um það bil sá sami, þótt þar sé verið að tala um mun stærra samfélag. Þetta er til merkis um að á einhvern hátt sé pottur brotinn og þetta er til alvarlegrar skoðunar,“ segir Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherra.
Uppbygging nýs Landspítala og þjóðarhallar hefur tafist um sex mánuði hið minnsta vegna kærumála. Helgi Geirharðsson, verkefnastjóri um byggingu þjóðarhallar, segir fimmtu kæruna hafa borist um miðjan síðasta mánuð. Kærunefnd útboðsmála hafi tekið kæruna til umfjöllunar og var hún felld niður. Ákvörðunin var tilkynnt í gær.
Boðar frumvarp í haust
Samkvæmt lögum geta fyrirtækin sem bjóða í framkvæmdina kært niðurstöðu útboðs til kærunefndar útboðsmála og er kærugjald rúmar tvö hundruð þúsund krónur.
Er einfaldlega ekki of auðvelt og ódýrt að kæra útboð?
„Ég held að það sé einn hlutur. En ég held að við getum líka vandað betur útboðsgerð. Ég held að þegar svona stór vandamál koma upp séu yfirleitt fleiri en ein ástæða fyrir þeim. En jú, það er sennilega of ódýrt líka að kæra.“
Unnið sé að frumvarpi í fjármálaráðuneytinu um opinberar framkvæmdir sem taki meðal annars á kærum vegna útboða. Frumvarpið sé á leið í samráðsgátt og verði lagt fram á Alþingi í haust.
„Fyrst og fremst erum við að tryggja það að þessar framkvæmdir fái betri undirbúning. Við erum að taka á því sem við getum tekið á, sem er að tryggja að vel sé vandað til áætlunargerðar og útboða.“