Maður var handtekinn í Hlíðunum í gærkvöld eða í nótt fyrir líkamsárás og var hann vistaður í fangaklefa.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna verkefna frá klukkan 17 í gær til klukkan 5 í morgun. Alls eru 45 mál skráð í kerfinu á umræddu tímabili og gistir einn í fangageymslu nú í morgunsárið.
Tilkynnt var um innbrot og þjófnað í gám í Hafnarfirði, þrír ökumenn voru stöðvaðir í akstri undir áhrifum fíkniefna. Allir reyndust sviptir ökuréttindum og bifreið eins ökumannsins var á nagladekkjum.