Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum - Vísir

Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum - Vísir

Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum - Vísir

Gríðarlegur fjöldi fólks syrgir þá stórkostlegu tónlistarkonu og þann mikla mannvin sem Dolly Parton var og arfleifð hennar mun tvímælalaust lifa um ókomna tíð. Hún veitti tónlistarfólki um allan heim mikinn innblástur og Selma Björnsdóttir er engin undantekning þar á. 

Eignaðist Dolly kasettu sjö ára 

Blaðamaður ræddi við Selmu um fráfall og áhrif stórstjörnunnar en Selma er nýkomin heim frá Nashville þar sem hún var í sérstakri Dolly Parton og kántrý-ferð.

„Ég held einmitt á tösku akkúrat núna sem ég keypti úti og á stendur: In Dolly we trust,“ segir Selma brosandi.

„Dolly er ástæðan fyrir því að ég gerði kántrý plötu og ég kynntist kántrýinu í gegnum Dolly. Ég fór út með vinkonu minni og við heimsóttum Country Music Hall of Fame, þar sem heill salur er tileinkaður henni, og Grand Ole Opry sem er eins konar vagga kántrý-tónlistar. Dolly kom í fyrsta sinn fram þar þrettán ára gömul og þar er risa Dolly-veggur. Ef þú fékkst gigg á Grand Ole þá varstu alveg við það að meika það.“

Það var mikið ævintýri hjá Selmu að heimsækja ýmsa staði sem Dolly Parton tengdist náið.Instagram

Ferðin var mögnuð að sögn Selmu en hún hefur alla tíð verið þekkt af vinum sínum sem mikill Dolly aðdáandi.

„Í gær byrjuðu kveðjur frá vinum mínum að hrynja inn og ég fór bara að gráta. Ég var sjö ára gömul þegar ég eignaðist kasettu með lögum Dollyar og þar voru lög á borð við I will always love you og Love is like a butterfly. Hún hefur fylgt manni í gegnum allt. 

Ég hef sömuleiðis leitað á náðir Dolly Parton sem sálfræðings þegar ég hef átt erfitt, bæði í tónlist hennar og viðtöl. Hún hefur svo fallega sýn á lífið og er líka mikill húmoristi sem getur gert grín af ótrúlegustu hlutum. 

Ég átti tvö sálfræðinga, það var Leonard Cohen og textar hans og svo andi og lög Dolly Parton.“

Kölluð gangandi engill

Alla sína ævi lét Dolly Parton gott af sér leiða, sýndi minnihlutahópum samstöðu í verki, gaf pening til heilbrigðismála, stofnaði bókasafn, gaf börnum á aldrinum 0-5 ára eina bók á mánuði og hlaut meðal annars heiðurs-Óskar fyrir mannúðarstörf árið 2025.

„Hún var svo ótrúlega mikill mannvinur og mikill húmoristi og Internetið er blessunarlega uppfullt af gullkornum af hennar vörum um ýmsa hluti. Eitt af mínum uppáhalds kvótum er: If you want the rainbow you gotta put up with rain, eða ef þú vilt regnboga þarftu að sætta þig við rigninguna. 

Svo var hún frábær leikkona og pródúsent og hætti aldrei að láta gott af sér leiða. Hún hefði getað sankað öllu að sér og verið milljarðamæringur en gaf svo mikið til menntunar og var svo örlát, mér finnst það algjörlega frábært. Eins og Billie Eilish spurði milljarðamæringa eftirminnilega í vetur: Afhverju eruð þið milljarðamæringar, hvað hafið þið að gera með allan þennan pening?“

Selma heimsótti tónleikahöllina Grand Ole Opry þar sem Dolly kom fyrst fram þrettán ára gömul.Instagram

Þá segir Selma sömuleiðis galið að ímynda sér hvað Dolly þurfti að berjast mikið fyrir því að láta taka sér alvarlega.

„Að ryðja sér til rúms kornung í feðraveldisumhverfi svona ljóshærð, smávaxin og falleg. Hún hefur algjörlega þurft að hafa munninn fyrir neðan nefið til að láta hlusta á sig, sem hún gerði og hún þurfti að þola mikið af heimskum ljóskubröndurum. Hún sagði náttúrulega að hún tæki því ekki næri sér því í fyrsta lagi var hún ekki heimsk og í öðru lagi ekki náttúrulega ljóshærð,“ segir Selma og hlær.

„Hún hefur aldrei tekið sér sérstaklega hátíðlega og var eiginlega fyrsta konan sem viðurkenndi að hún færi í lýtaaðgerðir þegar það var rosalegt tabú. Hún var hreinskilin og sagðist einfaldlega frekar vilja líta skringilega út en ellilega. Hún hafði svör við öllu og var alltaf blíð enda gjarnan kölluð walking angel. Hún hafði samt rosalegan tögg og lét aldrei valta yfir sig.“

Dolly-viskan gott veganesti

Selma elskar að syngja lög frá Dolly. 

„Ég gaf út kántrý-plötuna Alla leið frá Texas árið 2010 þar sem ég syng nokkur lög frá Dolly á íslensku, meðal annars lögin Litla dúfa, þýtt frá Little Sparrow og Litskrúðuga kápan, þýtt frá Coat of Many Colours. Það eru þau lög sem ég elskaði mest frá henni fyrir utan hennar helstu smelli. Ég var svo heppin að fá að koma fram á heiðurstónleikum Dolly Parton í Eldborg núna í janúar þegar hún var áttræð.“

Búningar Dolly Parton voru einstaklega glæsilegir alla tíð.Instagram

Henni þótti einstaklega skemmtilegt að ná að skoða alls konar búninga frá Dolly úti í Nashville.

„Þetta eru náttúrulega goðsagnakenndir búningar og það var engin eins og hún. Ég á bæði búningabiblíuna hennar og ævisögu hennar heima. Ég er líka mjög glöð að ég keypti fullt af jólagjöfum úr hennar merch-i. Þannig fólkið mitt fær alls konar Dolly Parton-legt um jólin.

Svo er ég með plaggat upp á vegg heima með mynd af Dolly Parton og undir stendur: What would Dolly do? Stundum þegar mig vantar svör þá spyr ég mig að þessu, hvað myndi Dolly gera? Henni tókst alltaf að finna jákvæða lausn á hlutunum, Dolly viskan er sannarlega gott veganesti,“ segir Selma að lokum.

#dolly #erfiðum #leitaði #náðir #parton


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262926321d/leitadi-a-nadir-dolly-parton-a-erfidum-timum

📰 Aðrar fréttir

Að­dá­endur í­trekað farið yfir mörk - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 1
Að­dá­endur í­trekað farið yfir mörk - Vísir
„Það var ömurlegt. Það er svo mikið stress að starta svona túrum. Maður er bara á fullu og maður er ekki búinn að spila í langan tíma og það er allt a...
Vonast til að geta leyst ráðgátuna um Ameliu Earhart
📅 11.10.2026 👁️ 2
Vonast til að geta leyst ráðgátuna um Ameliu Earhart
Vísindafólk frá bandarískri stofnun um fornleifaarfleið, Archaeological Legacy Institute, og Purdue-háskóla kemur til Nikumaroro-eyju í Kyrrahafi á má...
Fjölskylduharmleikur í Pennsylvaníu
📅 11.10.2026 👁️ 2
Fjölskylduharmleikur í Pennsylvaníu
Maður á fimmtugsaldri skaut sjö ættingja sína og fjölskylduvin á heimili í borginni Erie í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum í gær, áður en hann tók sitt e...
Justice Department investigating television networks over Trump pool coverage
📅 11.10.2026 👁️ 3
Justice Department investigating television networks over Trump pool coverage
The White House had blocked access for CNN, MS Now and Politico, leading them to restrict pool coverage.
UK launch flood taskforce to prepare for extreme winter weather
📅 11.10.2026 👁️ 3
UK launch flood taskforce to prepare for extreme winter weather
The Environment Agency has warned approximately 6.3 million homes and businesses in England remain at risk of flooding.
Heimila losun á fjórum milljónum tunna af hráolíu vegna fellibylsins Isaias
📅 11.10.2026 👁️ 3
Heimila losun á fjórum milljónum tunna af hráolíu vegna fellibylsins Isaias
Fellibylurinn Isaias sem skall að landi við Flórída og Alabama í gær hefur raskað olíuframleiðslu Bandaríkjanna við strendur Mexíkóflóa.Orkumálaráðher...
Hútar sagðir á­byrgir fyrir á­rás á flug­völl - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Hútar sagðir á­byrgir fyrir á­rás á flug­völl - Vísir
Samkvæmt umfjöllun Reuters særðust 309 manns og voru sumir þeirra fluttir á sjúkrahús í lífshættu. Árásin hafi verið gerð fyrirvaralaust og er þetta s...
Þúsundir mótmælenda sagðir hafa verið handteknir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Þúsundir mótmælenda sagðir hafa verið handteknir
Þúsundir mótmælenda voru handteknir í Nýju-Delí, höfuðborg Indlands, í dag þegar mótmælt var breytingum á kjörskrá landsins. Þetta kemur fram í tilkyn...
Blackpink’s Lisa Manobal: How the K-pop star faced a race scandal
📅 10.10.2026 👁️ 4
Blackpink’s Lisa Manobal: How the K-pop star faced a race scandal
Film-maker Sue Kim talks about having unprecedented access to K-Pop idol Lisa Manobal at her most candid.
AI is creating a 'human premium' for art created by people
📅 10.10.2026 👁️ 4
AI is creating a 'human premium' for art created by people
Amid a surge in AI content, many are placing extra value on art that's obviously made by a human. But can that last, asks Ros Atkins
Plan 2: Three friends on a decade of student loans
📅 10.10.2026 👁️ 4
Plan 2: Three friends on a decade of student loans
Lizzy, Charlotte and Libby studied at the same time, but their student debt now looks very different.
MPs attempt to overturn ruling which protects police from being sued
📅 10.10.2026 👁️ 4
MPs attempt to overturn ruling which protects police from being sued
MPs are seeking to stop immunity applying when police fabricate evidence or are dishonest or negligent.
Fjórir fórust af völdum fellibyljarins Isaias
📅 10.10.2026 👁️ 5
Fjórir fórust af völdum fellibyljarins Isaias
Að minnsta kosti fjórir fórust af völdum fellibyljarins Isaias sem skall á strönd Flórída og Alabama í gærkvöld.Dregið hefur úr krafti Isaias en enn e...
Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Bratta­hlíð Ei­ríks rauða - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Bratta­hlíð Ei­ríks rauða - Vísir
Í fréttum af fornleifafundinum í síðustu viku kom fram að menn hafi lengi grunað að þarna væri kirkjurúst frá tímum norrænu byggðarinnar. Sönnunin vær...
Tóku samtalið um land allt
📅 10.10.2026 👁️ 4
Tóku samtalið um land allt
„Samtalið“ svokallaða fór fram í dag, þar sem fólk hittist, ræddi framtíðina og hvernig samfélag það vill. Verkefnið heitir „Tölum saman“ og varð til ...
Út­skrifuð af sjúkra­húsi og send aftur í fangelsið - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 5
Út­skrifuð af sjúkra­húsi og send aftur í fangelsið - Vísir
Hin fimmtuga Pike lifði af tvær banvænar sprautur sem hún fékk á miðvikudaginn í síðustu viku í Tennessee í Bandaríkjunum. Hún komst aftur til meðvitu...
Tveir látnir eftir árás á alþjóðaflugvöll í Sádi-Arabíu
📅 10.10.2026 👁️ 5
Tveir látnir eftir árás á alþjóðaflugvöll í Sádi-Arabíu
Að minnsta kosti tveir eru látnir eftir árás á King Khalid-alþjóðaflugvöllinn í Ríad í Sádi-Arabíu í dag. Frá þessu greinir AFP-fréttastofan og hefur ...
Tólf látnir eftir árás á alþjóðaflugvöll í Sádi-Arabíu
📅 10.10.2026 👁️ 4
Tólf látnir eftir árás á alþjóðaflugvöll í Sádi-Arabíu
Að minnsta kosti tólf manns eru látnir og 309 særðir eftir árás á King Khalid-alþjóðaflugvöllinn í Ríad í Sádi-Arabíu í dag, að sögn flugmálayfirvalda...
Kalla eftir að­gerðum ekki yfir­lýsingum - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 5
Kalla eftir að­gerðum ekki yfir­lýsingum - Vísir
„Íslensk stjórnvöld voru nýlega meðal 12 ríkja sem sendu frá sér yfirlýsingu um fyrirhugaðar aðgerðir gegn viðskiptum með vörur frá ólöglegum landtöku...
Vill auka að­gengi að verkja­lyfjum - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Vill auka að­gengi að verkja­lyfjum - Vísir
Nú fást lausasölulyf að jafnaði í apótekum. Lyfjastofnun getur þó leyft verslunum að selja ákveðin lyf ef meira en tuttugu kílómetrar eru í næsta apót...
Northern Lights: Aurora stun UK down to England's south coast
📅 10.10.2026 👁️ 4
Northern Lights: Aurora stun UK down to England's south coast
The natural phenomenon, known as the Aurora Borealis, is the result of increased solar activity.
Tvær milljónir manna í landfræðilegu búri
📅 10.10.2026 👁️ 4
Tvær milljónir manna í landfræðilegu búri
Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri Unicef á Íslandi, segir líflína fólks á Gaza að fólk muni eftir þeim, fjármagni hjálp sem það þurfi og ýti á st...
Vill nýjan Úkraínuforseta - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Vill nýjan Úkraínuforseta - Vísir
Í gær greindi Trump frá samkomulagi sínu við Vladímír Pútín Rússlandsforseta um að Rússar hefji þegar í stað útflutning á hundruðum þúsunda tonna af d...
„Ég sé ekki að ís­lenskt sam­félag vilji kasta því fyrir róða“ - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
„Ég sé ekki að ís­lenskt sam­félag vilji kasta því fyrir róða“ - Vísir
Kennarasamband Íslands boðaði til blaðamannafundar í vikunni þar sem sambandið kynnti stefnumótun og áherslur í menntamálum. Kallaði sambandið eftir s...
Mestu skiptir að engan sakaði
📅 10.10.2026 👁️ 4
Mestu skiptir að engan sakaði
Innan við tvær klukkustundir tók að slökkva eldinn í álverinu í dag og var kerskáli tekinn úr rekstri á meðan.„Það er ekki vitað að svo stöddu hvað ol...
Frá dísilsamningi við Pútín til ákalls Trumps um nýjan forseta Úkraínu
📅 10.10.2026 👁️ 4
Frá dísilsamningi við Pútín til ákalls Trumps um nýjan forseta Úkraínu
Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði við fréttamenn fyrir utan Hvíta húsið í dag að hann teldi kominn tíma til að Úkraína fengi nýjan forseta. Hann la...
K-kúrfu hagkerfið
📅 10.10.2026 👁️ 4
K-kúrfu hagkerfið
K-kúrfu hagkerfið Verð­bólga var ekki til­kom­in vegna launa og eyðslu neðri hluta K-leggs­ins í hag­kerf­inu, held­ur vegna að­gerða at­vinnu­lífs­in...
Lést eftir á­rás tígris­dýrs í dýra­garði - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Lést eftir á­rás tígris­dýrs í dýra­garði - Vísir
Lögreglunni barst tilkynning um að maðurinn hefði farið inn á girt svæði klukkan hálf tvö að staðartíma í dag. Í kjölfarið hafi tígrisdýrið ráðist á m...
Erum að horfa á vendipunkt í verðbólgunni
📅 10.10.2026 👁️ 4
Erum að horfa á vendipunkt í verðbólgunni
Hvert einasta sæti var skipað og rúmlega það á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar í dag. Ræða formannsins og forsætisráðherrans bar heitið Styrk hö...
Four dead and thousands without power after Hurricane Isaias lashes US
📅 10.10.2026 👁️ 5
Four dead and thousands without power after Hurricane Isaias lashes US
Roofs were ripped off buildings after Isaias barrelled into the US on Friday evening, before it weakened to a post-tropical cyclone.
Karlmaður lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði
📅 10.10.2026 👁️ 5
Karlmaður lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði
Karlmaður er látinn eftir árás tígrisdýrs í dýragarði skammt frá borginni Doncaster í Jórvíkurskíri á Englandi. Lögregla segir manninn hafa farið inn ...
Vilja bíla­stæðin upp úr skot­gröfunum - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 5
Vilja bíla­stæðin upp úr skot­gröfunum - Vísir
Meðal bílastæðanna fimmtán sem verða tekin aftur í notkun eru tvö við Kaffi Babalú á Skólavörðustíg þar sem fréttamaður hitti þær Guðnýju Maríu Jóhann...
Níu létust eftir skot­á­rás - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 5
Níu létust eftir skot­á­rás - Vísir
Lögregla var komin á vettvang aðeins örfáum mínútum eftir að tilkynning barst henni um skothvelli úr íbúðarhúsi. Allir níu voru þegar látnir þegar lög...
Smári og Linda muna vel eftir opnun Smáralindar
📅 10.10.2026 👁️ 5
Smári og Linda muna vel eftir opnun Smáralindar
Verslunarmiðstöðin Smáralind var opnuð á þessum degi fyrir 25 árum. Smári úr Smáraskóla og Linda úr Lindaskóla fengu þann heiður að opna þessa stærstu...
Expedition hopes to find aviator Amelia Earhart's plane on remote island
📅 10.10.2026 👁️ 5
Expedition hopes to find aviator Amelia Earhart's plane on remote island
The team en route to the suspected crash site aim finally to solve the mystery of her 1937 disappearance.
Á annað hundrað sektaðir - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 5
Á annað hundrað sektaðir - Vísir
Um helgina fer fram sýningin Íslenskur landbúnaður 2026 í Laugardalshöll en fagsýningarfyrirtækið Ritsýn stendur fyrir sýningunni. Hátt í hundrað sýne...
New selfie spot in Corralejo made from 100% recycled plastic
📅 10.10.2026 👁️ 5
New selfie spot in Corralejo made from 100% recycled plastic
Visitors to Corralejo have a new place to capture their holiday photographs following the installation of a tourist selfie spot made entirely from rec...
Trump vill að Úkraína skipti um forseta
📅 10.10.2026 👁️ 5
Trump vill að Úkraína skipti um forseta
Donald Trump Bandaríkjaforseti vill að Úkraínumenn velji sér annan forseta sem geti bundið enda á stríð landsins við Rússland.Hann er Volodomyr Zelens...
Kristrún Frostadóttir: Þrátt fyrir nei „lokum við að sjálfsögðu ekki á Evrópu“
📅 10.10.2026 👁️ 4
Kristrún Frostadóttir: Þrátt fyrir nei „lokum við að sjálfsögðu ekki á Evrópu“
Kristrún Frostadóttir: Þrátt fyrir nei „lokum við að sjálfsögðu ekki á Evrópu“ For­sæt­is­ráð­herra seg­ir að nið­ur­staða þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­un...
Þrátt fyrir nei „lokum við að sjálfsögðu ekki á Evrópu“
📅 10.10.2026 👁️ 5
Þrátt fyrir nei „lokum við að sjálfsögðu ekki á Evrópu“
Kristrún Frostadóttir: Þrátt fyrir nei „lokum við að sjálfsögðu ekki á Evrópu“ For­sæt­is­ráð­herra seg­ir að nið­ur­staða þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­un...
Þrír réðust á einn - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Þrír réðust á einn - Vísir
Er þetta meðal þeirra mála sem skráð eru í kerfi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu frá því í dag. Líkamsárásin átti sér stað í umdæmi lögreglustöðvar ...
'Time for Ukraine to get new president,' says Trump after Zelensky condemns diesel deal
📅 10.10.2026 👁️ 4
'Time for Ukraine to get new president,' says Trump after Zelensky condemns diesel deal
Ukraine's leader had said the deal with Russia to release diesel into the US would help Moscow fund the war.
Kirkjugestir mæta í þjóðbúningum
📅 10.10.2026 👁️ 4
Kirkjugestir mæta í þjóðbúningum
Nokkrar þjóðbúningamessur hafa verið haldnar í sunnlenskum kirkjum síðustu ár og hafa þær heppnast einstaklega vel og margir mætt í þjóðbúningum. Pres...
Aftur í fangelsi eftir misheppnaða aftöku
📅 10.10.2026 👁️ 4
Aftur í fangelsi eftir misheppnaða aftöku
Christa Pike, 50 ára bandarísk kona sem lifði af tvær aftökutilraunir með banvænni sprautu í Tennessee-ríki í Bandaríkjunum, hefur verið útskrifuð af ...
Man dies after tiger attack at Yorkshire Wildlife Park
📅 10.10.2026 👁️ 4
Man dies after tiger attack at Yorkshire Wildlife Park
The visitor attraction near Doncaster was evacuated on Saturday and remains closed for the weekend.
Aníta Briem á von á þriðja barninu
📅 10.10.2026 👁️ 5
Aníta Briem á von á þriðja barninu
Leikkonan Aníta Briem og Hafþór Waldorff, eiga von á sínu öðru barni saman. Fyrir eiga þau dótturina Lúnu, sem fæddist í nóvember 2024. Parið gekk í g...
Á­kvað strax að hann ætlaði ekki að fela stómað - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 5
Á­kvað strax að hann ætlaði ekki að fela stómað - Vísir
„Ég eyddi öllu sumrinu á spítala því ég lenti í því að fá ristilpoka sem sprakk og gerði gat á ristilinn á mér, með tilheyrandi sýkingum og veseni. Ég...
Forsetaframbjóðandi hafnar því að vera handvalinn af Höllu
📅 10.10.2026 👁️ 5
Forsetaframbjóðandi hafnar því að vera handvalinn af Höllu
Frambjóðendur til forseta Alþýðusambands Íslands hafna því að þeir séu fulltrúar ólíkra fylkinga innan sambandsins.Arnaldur Grétarsson, sérfræðingur í...
Gengu kröfugöngu niður Laugaveg í tilefni alþjóðlegs aðgerðadags fyrir Palestínu
📅 10.10.2026 👁️ 5
Gengu kröfugöngu niður Laugaveg í tilefni alþjóðlegs aðgerðadags fyrir Palestínu
Fjöldi fólks gekk kröfugöngu frá Hlemmi að Austurvelli í tilefni alþjóðlegs aðgerðadags fyrir Palestínu í dag, 10. október.Í tilkynningu Félagsins Ísl...
Milljónavirði af rauðvíni stolið úr vöruhúsi í Toskana
📅 10.10.2026 👁️ 5
Milljónavirði af rauðvíni stolið úr vöruhúsi í Toskana
Óprúttnir þjófar stálu eðalvínum sem talið er fimm milljóna evra, jafnvirði um 687 milljóna króna, virði úr stærsta vöruhúsi hinnar nafntoguðu Marches...