Björgunarsveitir reyna að ná til göngumanns sem er kaldur og hrakinn eftir að hann datt í á í grennd Torfajökuls.
Bryndís Jóhannesdóttir, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi, segir tilkynningu hafa borist um klukkan hálf níu í kvöld. Hún segir leit hafa staðið yfir á því svæði sem staðsetningartækni Neyðarlínunnar staðsetti manninn.
Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út til að ferja fólk með fjarskiptabúnað úr Reykjavík á leitarsvæðið. „Við náum illa sambandi við björgunarsveitirnar, nema slitrótt,“ útskýrir Bryndís.
Bryndís segir að áhöfn þyrlunnar hafi séð hvar maðurinn veifaði vasaljósi þegar þyrlan flaug yfir leitarsvæðið. Hann er því fundinn en björgunarsveitir eru á leið til hans.
Fréttin verður uppfærð.