Leiða á­horf­endur gegnum garðinn eftir lokun - Vísir

Leiða á­horf­endur gegnum garðinn eftir lokun - Vísir

Leiða á­horf­endur gegnum garðinn eftir lokun - Vísir

„Þetta er annað sumarið í röð sem Vinnuskóli Reykjavíkur vinnur með mér að því að gefa ungu fólki, nýútskrifuðu úr tíunda bekk og á leiðinni í menntaskóla, tækifæri til að gera leiksýningu í staðinn fyrir að reita arfa. Þetta eru tíu krakkar sem eru öll skemmd eftir þetta,“ segir Helgi Grímur Hermannsson, leikskáld og leiklistarkennari.

„Í ár erum við með svo ógeðslega góða samstarfsaðila í Fjölskyldugarðinum, þau eru eiginlega ekki búin að segja nei við neinum af okkar skrítnustu hugmyndum. Fyrir vikið erum við með svona leiðangurssýningu um garðinn eftir lokun,“ segir hann.

Áhorfendur eru á einum tímapunkti læstir inni í skemmu.Jóhanna Helga Þorkelsdóttir

Rekstraraðilar garðsins eru byrjaðir að huga meira að fjölbreyttum viðburðum í garðinum og naut leikhópurinn góðs af því.

„Við fáum að vera tilraunadýr í því samhengi, fengum að leika lausum hala og sýningin endaði á að vera hálfuggvænleg sýning um skrítnar kynjaverur sem hafa tekið yfir garðinn og eru að gera tilraunir á mannfólki,“ segir Helgi Grímur.

„Það er óljóst hvaða tilraunir eru gerðar og fólk ruglast verulega í ríminu. Áhorfendur fá leynilegt verkefni í garðinum og þurfa að fela sig fyrir vörðum og öllum fjandanum.“

Hver er undir teppinu? Enginn má vita.Jóhanna Helga Þorkelsdóttir

Áhorfendur eru settir í einhver hlutverk?

„Þetta er leiðangur í garðinum, áhorfendur eru með fararstjóra og eru blekktir af kynjaverum og er síðan bjargað. Þetta er gagnvirkt þannig þeir tala við leikarana. Það er ekki verið að koma fólki í óþægilegar stöður en gæti verið uggvænlegt fyrir litla krakka,“ segir Helgi Grímur.

Saumakonurnar látnar vinna fyrir kaupinu

Leikhópurinn samanstendur af tíu krökkum sem eru fimmtán og sextán ára gömul. Þau hafa þurft að ganga í öll verk sem tengjast því að setja upp leikrit.

„Þetta eru krakkar sem hafa verið í leiklistarskóla Borgarleikhússins, margir sem hafa verið í leiklistarprógramminu í Laugalækjarskóla en líka alls konar krakkar sem hafa áhuga á listum og því að vinna í hóp,“ segir Helgi Grímur.

Áhorfendum er fylgt í gegnum garðinn.Jóhanna Helga Þorkelsdóttir

„Þetta eru fjölbreytt verkefni sem við þurfum að díla við því við erum að framleiða sýninguna alveg sjálf, þau eru búin að þurfa að gera plaköt, senda tilkynningu á fjölmiðla og sauma búninga,“ segir hann um vinnu krakkanna í sumar.

„Það eru saumakonur sem eru á svipuðum taxta og börnin í Kína miðað við hvað þær eru búnar að vera duglegar,“ bætir hann við.

Í garðinum eru mennsk tilraunadýr.Jóhanna Helga Þorkelsdóttir

„Markmiðið mitt er að vera eins lítið fyrir og hægt er og búa til aðstæður þar sem þau geta hámarkað sína hæfileika og skipulagskrafta,“ segir Helgi um hlutverk sitt í uppsetningunni.

„Við erum búin að vera að æfa okkur í því að takmarka ekki hugsanir okkar og leyfa okkur að dreyma stórt. Liður í því er að fá að nota tækin eftir lokun og alls konar stuð sem fólkið hjá fjölskyldugarðinum hefur verið til í að hjálpa okkur með,“ segir Helgi.

„Ef samstarfið gengur vel gæti það orðið upptaktur að einhverju meira í haust, til dæmis á hrekkjavökunni.“

Myrkrið geymir ýmis leyndarmál.Jóhanna Helga Þorkelsdóttir

Ekki lent í neinum hremmingum

Blaðamaður ræddi einnig við þrjú ungmenni úr leikhópnum, Indigo Iðunni Þorkelsbur, Helga Daníel Hannesson og Salóme Rósa Sindradóttur. Þau hafa mismikla reynslu af leiklist, Helgi Daníel lék í Draumaþjófnum í Borgarleikhúsinu árið 2023 sem hann segir töluvert frábrugðið leikritinu í fjölskyldugarðinum.

„Munurinn á Borgarleikhúsinu og þessu er að þú veist allan tímann hvað er í gangi. Í Draumaþjófnum þurfti maður að koma og æfa hina og þessa senu en vissi ekki almennilega hvað væri í gangi fyrr en í síðustu rennslunum. Núna sér maður betur heildarmyndina. Síðan er líka aðeins meiri pressa á okkur,“ segir Helgi Daníel.

Áhorfendum er fylgt í gegnum garðinn.Jóhanna Helga Þorkelsdóttir

Eitthvað sem hefur komið ykkur á óvart?

„Hvað við erum merkilega róleg miðað við hvað við erum óundirbúin og að það sé frumsýning í kvöld,“ segir Indigó.

„Það kemur líka á óvart hvað þetta gerist hratt í lok ferlisins,“ bætir Helgi við.

Er þetta manneskja eða kynjavera?Jóhanna Helga Þorkelsdóttir

Krakkarnir segjast ekki hafa lent í neinum hremmingum í ferlinu, einstaka sinnum hafi gestir garðsins stoppað æfingar til að forvitnast hvað sé um að vera. Núna er æfingaferlið búið og fjórar sýningar framundan í dag og á morgun.

„Það verða þrjár sýningar í kvöld, 18:30, 19:45 og 21, og ein á morgun,“ segir Salóme Rósa.

Hver er markhópurinn?

„Þetta virkar fyrir alla aldurshópa en kannski sérstaklega fyrir krakka á okkar aldri,“ segir Indigó. 

Eruð þið að endurspegla samtímann í verkinu?

„Í rauninni vorum við bara að leika okkur,“ segir Indigó Iðunn og Helgi Daníel bætir við: „Mikið til „sillý stöff“ sem heillar annað fólk og okkur sjálf.“

#eftir #garðinn #gegnum #leiða #áhorfendur

Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262906938d/ugg-vaen-legar-kynja-verur-taka-yfir-gardinn-eftir-lokun

📰 Aðrar fréttir

Fær engar bætur eftir vopnað rán á heimilinu
📅 25.11.2026 👁️ 0
Fær engar bætur eftir vopnað rán á heimilinu
Úrskurðarnefnd í vátryggingamálum hefur komist að þeirri niðurstöðu að viðskiptavinur ónefnds vátryggingafélags eigi ekki rétt á bótum úr fjölskyldutr...
Police raid drug den near primary school in Fuerteventura
📅 25.11.2026 👁️ 2
Police raid drug den near primary school in Fuerteventura
National Police have arrested three people following an operation targeting a suspected drug-dealing property close to a primary school and children's...
Markle ákærður fyrir vörslu barnsníðsefnis - Á yfir höfði sér 40 ára fangelsisvist
📅 25.11.2026 👁️ 1
Markle ákærður fyrir vörslu barnsníðsefnis - Á yfir höfði sér 40 ára fangelsisvist
Thomas Markle eldri, faðir Meghan Markle, hefur verið ákærður í Kaliforníu fyrir vörslu á barnaklámi. Nokkrir dagar eru liðnir frá því að dómari í Fló...
Police Hunt Gunman After Motorcyclist Shot in Tenerife
📅 25.11.2026 👁️ 1
Police Hunt Gunman After Motorcyclist Shot in Tenerife
A motorcyclist has been seriously injured after being shot with an air-powered weapon while riding through Bajamar, in the municipality of La Laguna, ...
Plast­pokar og málmklemmur hafi fundist í fóðri danskra svína - Vísir
📅 25.11.2026 👁️ 1
Plast­pokar og málmklemmur hafi fundist í fóðri danskra svína - Vísir
Danska ríkisútvarpið greinir frá en um er að ræða Peter Kjær Knudsen ApS svínaframleiðanda, sem heitir eftir svínabóndanum Peter Kjær Knudsen sem reku...
Vatna­skil í ástar­lífi Vignis Vatnars - Vísir
📅 25.11.2026 👁️ 1
Vatna­skil í ástar­lífi Vignis Vatnars - Vísir
Færslunni deildu þau með laginu Fallegur dagur með Bubba. Vignir Vatnar er sextándi stórmeistari Íslandssögunnar, tvöfaldur Íslandsmeistari í skák og ...
Réðust til atlögu og frelsuðu alla gíslana
📅 25.11.2026 👁️ 3
Réðust til atlögu og frelsuðu alla gíslana
Kólumbískir sérsveitarmenn réðust í nótt inn í matvöruverslun þar sem vopnaðir menn héldu 20 manns í gíslingu. Abelardo de la Espriella, forseti Kólum...
How Tenerife is turning its nightlife into a more sophisticated tourism experience
📅 25.11.2026 👁️ 1
How Tenerife is turning its nightlife into a more sophisticated tourism experience
For decades, Tenerife's nightlife has been strongly associated with lively bars, late-night clubs and the famous party atmosphere of Playa de las Amér...
Holur myndast víða um land og fólk beðið um að aka var­lega - Vísir
📅 25.11.2026 👁️ 2
Holur myndast víða um land og fólk beðið um að aka var­lega - Vísir
Fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands að lægð á Grænlandshafi og hæð yfir Noregi beini til okkar suðaustlægri átt, yfirleitt át...
Markle á­kærður fyrir vörslu barnaníðsefnis - Vísir
📅 25.11.2026 👁️ 1
Markle á­kærður fyrir vörslu barnaníðsefnis - Vísir
Markle, sem er enn í haldi í Flórída, er sagður hafa haft í vörslu sinni efni sem inniheldur að minnsta kosti eina mynd af barni sem ekki hefur náð ky...
Five arrested and 2,000 counterfeit items seized in South Tenerife
📅 25.11.2026 👁️ 1
Five arrested and 2,000 counterfeit items seized in South Tenerife
Five people have been arrested in the south of Tenerife following a police operation targeting the sale of counterfeit goods, with approximately 2,000...
Vatns­dals­hólar fái að vera ó­teljandi - Vísir
📅 25.11.2026 👁️ 1
Vatns­dals­hólar fái að vera ó­teljandi - Vísir
Fjallað er um Vatnsdal og Þing í þættinum „Um land allt“. Þátturinn verður frumsýndur á Sýn+ í kvöld, miðvikudagskvöld, klukkan 19:20. Vatnsdalshólar ...
Two children among six dead after plane crash off Mississippi coast
📅 25.11.2026 👁️ 1
Two children among six dead after plane crash off Mississippi coast
Divers found the bodies of four adults and two boys, aged 8 and 10, in the fuselage, the US Coast Guard said.
Tæknifyrirtæki taka aðra dýfu í kauphöllum
📅 25.11.2026 👁️ 2
Tæknifyrirtæki taka aðra dýfu í kauphöllum
Gleði í kringum endurkomu Jensens Huangs virðist hafa verið skammvinn en tæknifyrirtæki tóku dýfu á ný við opnun kauphalla í dag eftir mikla hækkun á ...
„Maður getur í raun gert hvað sem er“ - Vísir
📅 25.11.2026 👁️ 2
„Maður getur í raun gert hvað sem er“ - Vísir
Þórður Hans Baldursson og Kristján Thorlacius settu nýverið í loftið Midillinn.com sem mætti lýsa sem „falsfréttasíðu“ með ýmsum kúríósum og gríni. Mi...
Sigmundur Davíð deilir skjáskoti af Vísi – Segir öfga vinstrið saka Mette um rasisma
📅 25.11.2026 👁️ 2
Sigmundur Davíð deilir skjáskoti af Vísi – Segir öfga vinstrið saka Mette um rasisma
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson kallar Vísi öfga vinstri. Hann birti skjáskot af frétt Vísis um ummæli Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, og ...
WEDNESDAY WEATHER: Rain Returns as Temperatures Drop Across the Canary Islands
📅 25.11.2026 👁️ 3
WEDNESDAY WEATHER: Rain Returns as Temperatures Drop Across the Canary Islands
The Canary Islands are facing a noticeable change in the weather today (Wednesday 25th November), with falling temperatures, strengthening winds and r...
Borga auka­lega fyrir sorp­hirðuna þó þau geti ekki stjórnað stað­setningu - Vísir
📅 25.11.2026 👁️ 2
Borga auka­lega fyrir sorp­hirðuna þó þau geti ekki stjórnað stað­setningu - Vísir
Í úrskurðinum segir að sorptunnur íbúanna séu 21 metra frá götunni og því hafi borgin lagt skrefagjaldið á en það nemur 10 þúsund krónum fyrir tunnu f...
Blæs í dag en hvessir hressilega á morgun
📅 25.11.2026 👁️ 2
Blæs í dag en hvessir hressilega á morgun
Útlit er fyrir nokkuð hvasst veður í dag en á morgun bætir mjög í vind og þá má búast við suðaustan- og austanhvassviðri með vætusömu veðri. Á Suðaust...
„Engan ferðamann að sækja til Tenerife til þess að koma hingað norður“
📅 25.11.2026 👁️ 2
„Engan ferðamann að sækja til Tenerife til þess að koma hingað norður“
Icelandair ætlar að hefja beint flug frá Akureyri til Tenerife næsta haust, vikulega á þriðjudögum frá 19. október til 18. apríl vorið eftir. Ætla mæt...
Fyrsta móðirin til að vera krýnd Ung­frú al­heimur - Vísir
📅 25.11.2026 👁️ 2
Fyrsta móðirin til að vera krýnd Ung­frú al­heimur - Vísir
Keppnin hófst í síðustu viku og Sigga keppti því á þriðjudag og sunnudag en komst ekki áfram á lokakvöldið í gær. Á þriðjudag fór fram þjóðbúningakepp...
Textílverkamenn fá langþráða launahækkun
📅 25.11.2026 👁️ 2
Textílverkamenn fá langþráða launahækkun
Verkamenn í fataiðnaði í Bangladess fengu í dag samþykkta 36% hækkun á lágmarkslaunum. Starfsfólkið fór í verkfall 15. nóvember og hefur mótmælt vikum...
Spólaði í hringi við verslun í Kópa­vogi - Vísir
📅 25.11.2026 👁️ 2
Spólaði í hringi við verslun í Kópa­vogi - Vísir
Í dagbók kemur fram að í morgunsárið hafi þrír gist í fangageymslu. Í dagbók segir enn fremur að tilkynnt hafi verið um grunsamlegar mannaferðir í bæð...
Keyptu notaðan sófa á Facebook - Vísir
📅 25.11.2026 👁️ 2
Keyptu notaðan sófa á Facebook - Vísir
Fréttastofu barst ábending um að endurbætur stæðu yfir á skrifstofu borgarstjóra. Í tilefni af því var skrifstofunni send skrifleg fyrirspurn um endur...
María Rut Kristinsdóttir skrifar: Geymslan bíður!
📅 25.11.2026 👁️ 4
María Rut Kristinsdóttir skrifar: Geymslan bíður!
Mynd Það kannast líklega flestir við þá tilfinningu að vera í miðri tiltekt.
UK sent sex offender refugee to African country in undisclosed deal
📅 25.11.2026 👁️ 3
UK sent sex offender refugee to African country in undisclosed deal
The deal is said to be the first known case of the UK government forcibly resettling a refugee permanently overseas.
Hera spacecraft investigates damage at asteroid "crash scene"
📅 25.11.2026 👁️ 2
Hera spacecraft investigates damage at asteroid "crash scene"
The mission is studying an asteroid deliberately knocked off course by a colliding spacecraft.
Racism, misogyny and homophobia remain in Met force, report finds
📅 25.11.2026 👁️ 2
Racism, misogyny and homophobia remain in Met force, report finds
A new report has found institutional racism, misogyny and homophobia still exist in the Metropolitan Police, three years after a damning review.
26 námuverkamenn fastir eftir flóð
📅 25.11.2026 👁️ 2
26 námuverkamenn fastir eftir flóð
26 námuverkamenn eru fastir í ólöglegri gullnámu á eyjunni Jövu í Indónesíu eftir að úrhellisrigning olli því að nálæg á flæddi yfir bakka sína á mánu...
Moment Chinese space mission lifts off with first Pakistan astronaut aboard
📅 25.11.2026 👁️ 3
Moment Chinese space mission lifts off with first Pakistan astronaut aboard
China launched its Shenzhou-24 space mission to bring three astronauts to its Tiangong space station.
Thomas Markle formlega ákærður fyrir vörslu barnakláms
📅 25.11.2026 👁️ 5
Thomas Markle formlega ákærður fyrir vörslu barnakláms
Thomas Markle var í gær formlega ákærður af kviðdómi í Kaliforníu fyrir tvö brot sem varða vörslu barnakláms. Búist er við því að hann verði leiddur f...
Pattstaða komin upp í gíslatöku í stórmarkaði
📅 25.11.2026 👁️ 5
Pattstaða komin upp í gíslatöku í stórmarkaði
Vopnaðir menn tóku um 30 manns í gíslingu í stórmarkaði í borginni Cartagena í Kólumbíu í gær.Pattstaða hefur staðið yfir í margar klukkustundir en lö...
Trump's Nvidia intervention ties his political fortunes to the AI boom
📅 25.11.2026 👁️ 5
Trump's Nvidia intervention ties his political fortunes to the AI boom
The US president's intercession to reinstate CEO Jensen Huang has inextricably linked their fates.
With Huang rescue, Trump riskily ties his political fortunes to Nvidia
📅 25.11.2026 👁️ 5
With Huang rescue, Trump riskily ties his political fortunes to Nvidia
The US president's intercession to reinstate CEO Jensen Huang has inextricably linked their fates.
Trump's rescue of Nvidia's Huang brings political risks
📅 25.11.2026 👁️ 1
Trump's rescue of Nvidia's Huang brings political risks
The US president's intercession to reinstate CEO Jensen Huang has inextricably linked their fates.
Clashing political visions reflect a divided Spain ahead of election
📅 25.11.2026 👁️ 6
Clashing political visions reflect a divided Spain ahead of election
Sunday’s election could see a far-right party enter the Spanish government for first time.
Russia's own figures show almost 500,000 deaths in war in Ukraine
📅 25.11.2026 👁️ 6
Russia's own figures show almost 500,000 deaths in war in Ukraine
Leaked data reveal how the full-scale invasion of Ukraine has fundamentally changed mortality patterns in Russia.
Huawei sakfellt fyrir að stela iðnaðarleyndarmálum
📅 25.11.2026 👁️ 8
Huawei sakfellt fyrir að stela iðnaðarleyndarmálum
Bandarískur kviðdómur sakfelldi í dag tæknirisann Huawei fyrir að stela iðnaðarleyndarmálum.Réttarhöldin yfir Huawei stóðu yfir í þrjá mánuði fyrir al...
US preparing to unveil new tariffs on global trading partners
📅 25.11.2026 👁️ 6
US preparing to unveil new tariffs on global trading partners
The new levies would hit many of America's biggest trading partners, including China and the EU.
US preparing to unveil plan for new tariffs on global trading partners
📅 25.11.2026 👁️ 5
US preparing to unveil plan for new tariffs on global trading partners
The new levies would hit many of America's biggest trading partners, including China and the EU.
Households braced for soaring energy bills with new price cap to be announced
📅 25.11.2026 👁️ 4
Households braced for soaring energy bills with new price cap to be announced
Domestic gas prices will rise significantly in January under regulator Ofgem's new price cap.
Household energy prices to rise by 26% in January as new price cap confirmed
📅 25.11.2026 👁️ 3
Household energy prices to rise by 26% in January as new price cap confirmed
Domestic gas prices will drive the rise which affects millions of people on variable tariffs.
Energy bills to rise by 26% from January
📅 25.11.2026 👁️ 1
Energy bills to rise by 26% from January
A household using a typical amount of energy would see its annual bill rise from £1,723 to £2,166 if this level was sustained for a year.
Gæludýr velkomin á gjörgæsludeild
📅 24.11.2026 👁️ 4
Gæludýr velkomin á gjörgæsludeild
Það hefur þekkst á hjúkrunarheimilum í Frakklandi og víðar að fólk geti haft gæludýr hjá sér. Tilraunaverkefni stendur yfir á gjörgæsludeild spítala í...
Nágrannar flugvallar mótmæla: „Við viljum næturfrið“
📅 24.11.2026 👁️ 4
Nágrannar flugvallar mótmæla: „Við viljum næturfrið“
Meira en 200 nágrannar alþjóðaflugvallarins við Kaupmannahöfn mótmæltu fyrirhugaðri stækkun á flugvellinum fyrir utan ráðhúsið í Tårnby í dag. Einhver...
Sigga Ósk keppir á lokakvöldi Miss Universe - Vísir
📅 24.11.2026 👁️ 4
Sigga Ósk keppir á lokakvöldi Miss Universe - Vísir
Keppnin fer fram í borginni San Juan í Puerto Rico þetta árið og fór undankeppni Miss Universe fram aðfaranótt mánudags. Þetta er 75. keppnin sem hald...
One in three 16 to 24-year-olds in Britain have never had sex
📅 24.11.2026 👁️ 6
One in three 16 to 24-year-olds in Britain have never had sex
More young people in Britain have never had sex, but many are sexting and watching porn. 
Thomas Markle indicted by federal grand jury in US for possessing child sex abuse images
📅 24.11.2026 👁️ 3
Thomas Markle indicted by federal grand jury in US for possessing child sex abuse images
The FBI arrested Markle on 6 November after a search of a storage unit he had allegedly rented in Los Angeles uncovered the abuse material.
Thomas Markle indicted in US for possessing child sex abuse images

China-linked network using AI fakes to smear Taiwan election candidates, BBC Verify finds
📅 24.11.2026 👁️ 4
China-linked network using AI fakes to smear Taiwan election candidates, BBC Verify finds
The network attacked key figures in the ruling DPP, including President Lai and mayoral candidate Shen.