Jack White, söngvarinn úr hljómsveitinni White Stripes, sýnir nú nýja hlið á sér sem myndhöggvari með sýningu sem opnar í galleríi í Lundúnum sem rekið er af listamanninum Damien Hirst. Yfirskrift sýningarinnar er Jack White: THESE THOUGHTS MAY DISAPPEAR og þar sýnir hann skúlptúra, húsgögn, minnisbækur og ljósmyndir.
White hefur lengi sýnt áhuga á list en aldrei formlega komið fram sem myndlistarmaður. Í viðtali við Financial Times kemur fram að hugmyndin að sýningunni hafi kviknað þegar listamennirnir tveir hittust fyrst árið 2021. Þegar White sýndi Hirst myndir af listaverkum sem hann hafði búið til sagði Hirst að þeir ættu að setja upp sýningu en Hirst er talinn einn ríkasti núlifandi listamaðurinn í Bretlandi og varð t.d. heimsfrægur fyrir að setja dauð dýr, eins og 4 metra langan hákarl, í formalín.
„Ég er að reyna að setja tónlistina svolítið í aftursætið í þessu samhengi,“ sagði White.
„Ég vil ekki að það líti út eins og: „Ó, Frank Sinatra málar líka, hvað það er krúttlegt.“ Það er líklega ástæðan fyrir því að ég hélt aldrei sýningu, en ég vildi að myndlistinni yrði tekið á eigin forsendum.“
„Allt sem er vel gert getur að mínu mati verið list, og þess vegna fannst mér verk Jacks svo frábær,“ sagði Hirst. „Hann hefur mikla breidd í öllu sem hann gerir og gríðarlega næmni. Hann er ekki bara að mála, hann er að búa til súrrealíska hluti sem eru á sama tíma aðlaðandi og óaðlaðandi og geta höfðað til þín gegn vilja þínum. Hann reynir stöðugt á mörkin, sem er alveg í mínum anda.“

