Ísraelsher hefur gert röð loftárása í suðurhluta Líbanon í dag, þar á meðal í höfuðborginni Beirút. Herinn segir árásirnar beinast gegn Hezbollah-samtökunum. Í gær skipaði herinn íbúum að flýja norður yfir ána Zahrani, en hún er um 40 kílómetrum norðan við landamæri ríkjanna tveggja. Skipunin nær til um 14% af landsvæði Líbanons. Viðvörunin var gefin út af því að herinn ætlaði að gera kröftuga árás.
Líbanska heilbrigðisráðuneytið segir 11 hafa verið drepna í árásunum.
Í frétt BBC segir að árásir Ísraelshers í Beirút hafi hafist um klukkan 11 að íslenskum tíma. Fyrr í morgun gerði herinn árásir í hafnarborginni Týros.
AFP-fréttaveitan hefur eftir heimildarmönnum úr líbanska hernum að árásir Ísraelshers hafi meðal annars beinst gegn íbúð í suðurhluta Beirút þar sem ítök Hezbollah eru mikil.
Óbærilegar aðstæður fyrir almenna borgara
Ítrekaðar ásakanir um brot á vopnahléi hafa gengið á milli Hezbollah-samtakanna og Ísraelshers að undanförnu. Það tók gildi 17. apríl.
Skipun Ísraelshers um rýmingu sunnan við Zahrani nær til um 300 bæja og þorpa. Meira en milljón Líbanir hafa flúið heimili sín eftir að árásir Ísraelshers hófust í landinu í mars.
Sameinuðu þjóðirnar hafa sagt hvergi öruggan staða að finna í landinu. Agnes Dhur, yfirmaður Rauða krossins í landinu, segir stöðuna grafalvarlega. „Áframhaldandi hernaðaraðgerðir skapa aðstæður sem eru óbærilegar almennum borgurum og auka líkurnar á alvarlegum langtímaáhrifum,“ segir hún.