Íslenskir vatnslitamálarar í útrás - MBL.IS
📅 2026-05-24 16:08:56
👁️ 2 lesið
„Það er virkilega spennandi að fylgjast með vaxandi útrás íslensks vatnslitafólks á síðustu árum,“ segir Anna Ólafsdóttir Björnsson, en hún ásamt Aðalbjörgu Þórðardóttur er í forsvari fyrir þátttökuna á ítölsku Fabriano-vatnslitahátíðinni fyrir Ísland.
„Í gegnum tíðina hefur íslenskt vatnslitafólk tekið þátt í erlendu samstarfi, sérstaklega norrænu samstarfi. En núna er samstarf við fleiri erlenda aðila að eflast mikið sem tengist miklum uppgangi vatnslitalistarinnar hérlendis, sem má m.a. rekja til stofnunar Vatnslitafélags Íslands árið 2019 og einnig er öflugt vatnslitastarf fyrir norðan.“
Ein stærsta hátíð heims
Anna segir að það séu sérstaklega tvær hátíðir á Ítalíu og á Spáni sem Íslendingar hafi verið að sækja undanfarið. „Vatnslitahátíðin í Fabriano á Ítalíu er ein stærsta alþjóðlega vatnslitahátíð í heimi. Fabriano er lítill bær sem hverfist mikið í kringum pappírsframleiðslu og hátíðin hefur verið kennd við bæinn, en hún hefur stækkað svo mikið síðustu ár að hún hefur verið flutt til Bologna. Hátíðina sækja jafnan nokkrir fulltrúar hvers lands og hátíðin er einnig mjög stór á vefnum.“
Anna segir að það séu 90 lönd sem taki þátt í Fabriano-hátíðinni á hverju ári. Hvert land fær ákveðinn kvóta af myndum til að senda inn, en fleiri geta farið á vefsvæði hátíðarinnar.
Innri garður Teatro Arena del Sole-leikhússins þar sem þátttakendur gátu borðað og höfðu aðstöðu til að hittast, ræða og mála saman.
Ljósmynd/Aðsend
Málað undir tónlistarflutningi
„Okkar kvóti er tíu myndir og Íslendingar hafa verið að fylla þann kvóta alveg ljómandi vel síðustu árin,“ segir hún og bætir við að þessi hátíð sé ólík mörgum öðrum að því leyti að það er engin keppni í gangi heldur tilgangurinn frekar að sýna fjölbreytnina og flóruna í vatnslitaiðkun í heiminum. Anna lætur einnig fylgja með að eitt árið hafi Fabriano-hátíðin einnig verið sett upp í Texas og þar hafi Íslendingar sömuleiðis tekið þátt.
„Dagskrá Fabriano-hátíðarinnar er mjög metnaðarfull. Maður fyllist andagift í þessu umhverfi og á hátíðinni er mikið verið að tengja fólk saman. Þarna eru stærstu nöfnin í heiminum að halda sýnikennslu og námskeið og síðan er oft málað undir tónlistarflutningi. Það er líka gaman að sýna umheiminum vaxandi styrk íslenskrar vatnslitamenningar.“
Útsláttarkeppni á Spáni
Allt öðruvísi hátíð er haldin í Cordoba á Spáni, en hún var haldin í fjórða sinn í ár. „Íslendingar hafa verið með frá upphafi og gert það gott. Þar er mikið verið að keppa á ýmsan hátt og kannski málað í tvo tíma og svo valdar bestu myndirnar í nokkurs konar útsláttarkeppni,“ segir Anna. Hún bætir við að á hátíðinni séu yfirleitt sýndar um 300 myndir víðs vegar að úr heiminum.
„Það er gífurlegur uppgangur í vatnslitalistinni hér og líka um allan heim. Það virðist sem margir leiti í umhverfi þar sem áherslan er á það sem sameinar okkur frekar en sundrar. Okkur Íslendingum hefur verið tekið opnum örmum á þessum hátíðum og það er mjög gott að fá svona tækifæri til að þroskast í listinni.“
Fáðu þér áskrift til að lesa áfram
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu,
rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki
á mbl.is.