Tveir sænskir afbrotamenn, sem komu til Noregs í apríl, vörðu innan við sólarhring í landinu áður en lögregla vísaði þeim úr landi. Frá þessu greinir lögreglan í Ósló í fréttatilkynningu.
Reyndust mennirnir hafa á sér dóm fyrir manndráp, annar þeirra, en hinn fyrir tilraun til manndráps og fleiri brot og þótti lögreglu rétt að vísa þeim varanlega úr landi með stoð í norskum lögum um útlendinga og er þeim þar með bannað að stíga fæti á norska grund aftur á meðan þeir lifa.
„Hér afhjúpuðum við aðila sem hafa í för með sér alvarlega ógn fyrir samfélagslegt öryggi okkar,“ segir Rune Solberg Swahn, yfirmaður útlendingadeildar lögreglunnar í Ósló, við norska ríkisútvarpið NRK og bætir því við að þegar við tolleftirlit hafi grunsemdir norskrar landamæralögreglu kviknað.
Með ákveðið afbrot í huga
„Þeir höfðu með sér svört föt, svarta hanska og svartan höfuðklæðnað,“ segir Swahn frá og enn fremur að skýringar mannanna á för sinni hafi þótt allloðnar. Kveður hann afskiptin af mönnunum og brottvísun þeirra senda skýr skilaboð um að norsk yfirvöld hafi vakandi auka og taki af alvöru á tilraunum erlendra brotamanna til að koma til Noregs.
Norska lögreglan hefur upplýsingar sem hún segir benda til þess að Svíarnir tveir hafi komið til Noregs í því augnamiði að fremja ákveðið afbrot frekar en að hreiðra þar um sig til frambúðar.
„Við höfum séð að sænsk glæpagengi leitast við að fela sig í Noregi, ráða fólk til óhæfuverka, hasla sér völl eða fremja glæpi. Þann möguleika skulu þeir ekki hafa og við þurfum að bregðast fljótt og hnitmiðað við,“ segir Swahn að lokum.