Í þýskalandi, nánar tiltekið í Kevelaer í Nordrhein-Westfalen, hafa umræður átt sér stað vegna náms 13-14 ára barna. Verkefnið var að velta fyrir sér starfssemi vændishúss og hanna eitt slíkt. Verður það næsta námsefni hér á landi í nafni fjölbreytileikans? Það má spyrja sig.
Nú þegar er logið að börnum í leik- og grunnskólum í nafni fjölbreytileikans. Klámmyndasýning í Álftamýrarskóla uppgötvaðist og kannski eru þær víðar. Í því ljósi skyldi maður ekki undrast að skólastjórnendur og kennarar gangi enn lengra.
Kynfræðsla í nafni fjölbreytileikans
Í áfanga um kynfræðslu fengu þýsku nemendurnir verkefni. Þau áttu að skipuleggja nútíma ,,vændishús fyrir alla.” Leiða má líkum að þessir ,,alla” eigi að fanga fjölbreytileikann í tengslum við trans hugmyndafræðina.
Fjölmiðlar þar ytra segja að leiðbeiningarnar hafi talið þrjár blaðsíður. Meðal annars áttu börnin að ræða: ,,Hvaða kynferðisþjónustu á að bjóða upp á” ,,Hvaða kynferðislegar óskir ættu að vera ,,aðlagaðar?” ,,Hvernig mismunandi hópar (væntanlega með trans hugmyndafræðina að leiðarljósi) myndu laðast að vændishúsinu?”
Siðan áttu þau að gera auglýsingar og hugmyndir að verðskrá. Hvaða fólk á að vinna á vændishúsinu og hvaða ,,hæfileika” það ætti að hafa til að ,,fullnægja” fjölbreyttum viðskiptavinum.
Staðfesti skrif fjölmiðla
Skólastjórnin hefur staðfest að verkefnið var í gangi og leiddi til mikillar gagnrýni hjá nemendum og foreldrum. Finnst ykkur það skrýtið? Mynduð þið sætta ykkur við svona verkefni í íslenskum skólum. Eru klámsýningar líkt og sást í Álftamýrarskóla ekki nóg að takast á við?
Tilgang námsins segir skólastjórinn vera til að skapa umræður um kynhneigð, fjölbreytileika og það sem ungt fólk mætir í samfélaginu. Samkvæmt skólanum er verkefnið ekki metið til einkunnar og verður líkalega ekki notað aftur. Aðrar kennsluaðferðir eru nú í þróun.
Að hugsa sér að 13–14 ára unglingar í grunnskóla fái að vinna með hvernig eigi að markaðssetja vændishúsahugmynd. Þau eiga að gera vændi aðlaðandi og aðlaga það að mismunandi kynferðislegum þörfum og óskum. Þetta er skýrt dæmi um hvernig vændi er gert eðlilegt fyrir börn.
Að meðhöndla ofbeldi karla gegn konum sem skapandi hönnunarverkefni fyrir börn og unglinga er ekki kynfræðsla – það er að sökkva niður á nýtt stig hryllings.
Og, Það í grunnskóla!
Heimild: Facebook
Helga Dögg Sverrisdóttir