Fjölmargir ferðamenn frá Indlandi, Bandaríkjunum, Bretlandi og Malasíu eru meðal þeirra sem er saknað.
Flóðin byrjuðu um klukkan níu í morgun, að staðartíma, og urðu í nokkrum ám í Nepal. Talið er líklegt að snjóflóð í jökli hafi valdið flóðunum. Sérfræðingur sem ræddi við AP fréttaveituna segir að snjóflóð og skriður hafi stíflað farveg Lhenda Khola-árinnar og flóðin hafi byrjað þegar stíflan brast.
Jöklar í Himalæjafjöllunum hafa bráðnað sífellt hraðar á undanförnum árum vegna hækkandi hitastigs og veðurfarsbreytinga.
Ráðamenn í Nepal óttast að fjölmargir hafi látið lífið í flóðunum. Þau náðu einnig til Tíbet þar sem embættismenn búast einnig við mannfalli.
Myndbönd af flóðunum hafa verið í dreifingu á samfélagsmiðlum í morgun.
This is seriously scary. CCTV footage from Gyirong Port in Tibet, China, directly opposite Nepal’s Rasuwa district. This flash flood hit here first and later caused massive havoc in Nepal. Can’t even imagine someone surviving this. Prayers for everyone affected. 🙏 https://t.co/o805P8KGSu pic.twitter.com/31QzZ64aBD
— Nikhil saini (@iNikhilsaini) August 26, 2026
Nepal flash flood –
— Sachin Gupta (@Sachingupta) August 26, 2026
नेपाली मीडिया रिपोर्ट के मुताबिक, अभी तक 32 पुलिसकर्मियों, 25 पिलग्रिम सहित बड़ी संख्या में लोगों के लापता होने की सूचना है। मतलब इनसे संपर्क कट गया है। हैलिकॉप्टरों ने 12 लोगों को सुरक्षित रेस्क्यू किया है। कई हाइड्रो पॉवर प्रोजेक्ट बह गए हैं।
पत्रकार… https://t.co/C6kuBf1HJp pic.twitter.com/UsZRTxSdX9