Sigríður Magnea Óskarsdóttir, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir að hrina hafi verið nær landi í gær, en skjálftavirkni á þessu svæði sé mjög algeng vegna flekahreyfinga og því ekki undanfari stærri atburðar.
Skjálftarnir séu langt frá allri byggð og ólíklegt að fólk finni fyrir þeim.
Síðasti skjálfti sem var stærri en 4 við Eldey á Reykjaneshrygg var í mars. Í febrúar var einnig kröftug hrina á svæðinu.