Heilsu Haralds Noregskonungs hefur hrakað um helgina.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá norsku konungshöllinni til norskra fjölmiðla fyrir stuttu.
Þar segir að Haraldur sé á sýklalyfjameðferð vegna bakteríusýkingar í blóði. Hann svari meðferð vel.
Haraldur var lagður inn á sjúkrahús 17.ágúst vegna veikinda.
Hefur verið í meðferð vegna blóðleysis
Haraldur, sem er 89 ára, hefur síðustu vikur verið í meðferð vegna blóðleysis sem orsakast af skorti á rauðum blóðkornum. Sjúkdóminn er yfirleitt hægt að meðhöndla með lyfjum.
Haraldur hefur verið tæpur til heilsunnar um nokkurt skeið og var síðast í febrúar lagður inn á sjúkrahús á Tenerife þar sem hann var í fríi.