Einn var handtekinn grunaður um innbrot í Reykjavík í dag. Lögregla fékk tilkynningu um innbrot og stuttu síðar barst tilkynning um aðra í næstu götu.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Innbrotið var í umdæmi lögreglustöðvar eitt sem sinnir verkefnum í miðbæ, Austurbæ og á Seltjarnarnesi.
Stolið úr matvöruverslun
Þá bárust tvær tilkynningar um þjófnað úr matvöruverslun.
Annar þjófnaðurinn var í umdæmi lögreglustöðvar tvö, sem sinnir verkefnum í Hafnarfirði og Garðabæ, en hinn í umdæmi lögreglustöðvar þrjú, sem sinnir verkefnum í Kópavogi og Breiðholti.
Einum var vísað úr strætó eftir að hafa lagst þar til svefns. Þá var einn ökumaður stöðvaður á 126 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 80 kílómetrar á klukkustund.