Jonathan Andic, sonur stofnanda fatamerkisins Mango, Isak Andic, var í síðustu viku handtekinn í tengslum við rannsókn á andláti föður síns.
Isak Andic lést árið 2024 er hann féll niður gil á fjallgöngu nálægt Barcelona á Spáni, en sonur hans var með í fjallgöngunni.
Jonathan, sem jafnframt er varaforseti fatamerkisins, hefur neitað ásökununum um að hann hafi komið að dauða föður síns.
Hann var handtekinn í síðustu viku en var síðan látinn laus gegn einnar milljónar evra tryggingu.
Í opnu bréfi til starfsfólks segir Andic að hann muni nú láta af störfum sem varaforseti til að einbeita sér að málsvörn sinni.
Þá kallar hann ásakanirnar „alvarlegar, ranglátar og tilhæfulausar“.
Isak Andic stofnaði Mango í Barcelona árið 1984 en verslanir fyrirtækisins má finna í 120 löndum.