Hagsmunasamtök æskunnar (HÆ), ný almannaheillasamtök, ætla að veita hinu opinbera aðhald í málefnum barna með því að safna opinberum gögnum og kortleggja ábyrgð frá því að loforð eru gefin þar til úrræði eru komin til framkvæmda og hafa sannað gildi sitt.
Í fréttatilkynningu um stofnun samtakanna segir að stofnendur HÆ búi að áratugareynslu úr barnavernd, löggæslu, meðferðarstarfi og fræðasamfélaginu. Í hópnum séu einnig foreldrar sem þekki kerfið af eigin raun.
„Saman ætla þau að nýta opinber gögn til að knýja fram bætta þjónustu og löggjöf í þágu barna,“ segir í tilkynningunni.
Alexander Gunnarsson framkvæmdastjóri HÆ segir samtökin hafa velferð barna að leiðarljósi. Markmiðið sé að bæta þjónustu við börn sem falli gjarnan milli kerfa.
„Með því að vinna með öllum aðilum sem koma að þessu, allt frá stjórnsýslu og bara niður í beina þjónustu, getum við bara greint allt og þeir sem fara með ákvörðunarvaldið geta tekið upplýstar ákvarðanir um hvað raunverulega virkar og hvar vandinn liggur, og með því finna lausnir sem raunverulega virka,“ segir Alexander.
Samtökin segja ábyrgð á málefnum barna svo dreifða að hætta sé á að börn falli á milli kerfa. Þau ætla að þróa hugbúnað sem safnar opinberum gögnum um börn sjálfvirkt og nýta sér upplýsingarétt almennings til að kalla fram gögn sem annars liggi ekki opin.
Í stjórn samtakanna sitja:
- Pétur Guðmundur Broddason, málstjóri farsældar hjá Reykjavíkurborg
- Sigrún Sigurðardóttir, dósent við Háskólann á Akureyri
- Guðmundur Fylkisson, lögreglumaður
- Lilja Björk Guðrúnardóttir, félagsráðgjafi
- Berglind Gunnarsdóttir Strandberg, framkvæmdastjóri Foreldrahúss
- Aron Stefánsson, foreldri með reynslu af því að sækja þjónustu til ólíkra stofnana