Áður hafa verið gerðir tveir aukapakkar fyrir leikinn. Hearts of Stone (2015) og Blood and Wine (2016).
Leikirnir í söguheimi Witcher eru mjög vinsælir og þá sérstaklega sá þriðji í þríleiknum um Geralt frá Rivia. Þeir leikir gerast í söguheimi þar sem nokkrar víddir skullu saman. Við það strönduðu allskonar skrímsli, menn, dvergar, álfar og alls kyns verur saman í einum heimi með tilheyrandi deilum og átökum.
Stökkbreyttir stríðsmenn flakka um heiminn og drepa skrímsli fyrir peninga. Geralt er einn af þeim. Witcher 3 er af mörgum, undirrituðum meðtöldum, talinn einn af bestu leikjum heims.
Í yfirlýsingu segir að unnið sé að aukapakkanum í samstarfi við fyrirtækið Fool´s Theory en tiltölulega stutt er síðan opinberað var að það fyrirtæki væri einnig að vinna að endurgerð á Witcher 3 í Unreal Engine grafíkvélinni. Margir starfsmanna Fool‘s Theory unnu áður hjá CDPR og við gerð Witcher 3 á sínum tíma.
Upprunalega stóð til að segja frá aukapakkanum á morgun en sögusagnir um aukapakkann hafa lengi verið á kreiki.
Á meðan starfsmenn Fool‘s Theory eru að eiga við Witcher 3 eru starfsmenn CDPR að vinna að fjórða leiknum í seríunni. Sá leikur fjallar um Ciri, fósturdóttur Geralts, sem flakkar eins og hann um söguheiminn og gengur frá skrímslum.