Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að ef markmið ríkisstjórnarinnar hafi verið að stunda leyndarhyggju í yfirstandandi Evrópuumræðum á þinginu gefi hann ríkisstjórninni 9,5 af 10 í einkunn.
Þessi orð lét þingmaðurinn falla á Alþingi í dag en ríkisstjórnin leggur upp með að þingsályktunartillaga um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið verði samþykkt í dag.
Tvísýnt er þó hvort það takist enda eru viðræður enn líflegar um málið.
„Þá hefur það ekki borist til þingflokks sjálfstæðismanna“
Hóf Guðlaugur mál sitt á að fjalla um ásakanir þingmanna Miðflokksins þess efnis að sjálfstæðismenn í þinginu hefðu dregið sig í hlé í umræðum um tillöguna vegna nýs meirihlutasamstarfs við Viðreisn í borginni.
„Ef það er kominn einhver friður milli Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar þá hefur það ekki borist til þingflokks sjálfstæðismanna,“ sagði þingmaðurinn en þingmenn Miðflokksins eru einu þingmenn stjórnarandstöðunnar sem eru á mælendaskrá í Evrópuumræðum dagsins.
Vonast Guðlaugur til þess að Sjálfstæðisflokkurinn og Miðflokkurinn einbeiti sér áfram að því að koma í veg fyrir að ríkisstjórnin komi Íslandi inn í Evrópusambandið.
Gagnrýndi þögn ráðherra
Vék ráðherrann fyrrverandi þá að þeirri leyndarhyggju sem hann telur hafa einkennt vinnubrögð ríkisstjórnarinnar vegna málsins. Hefur umræðan í seinni umræðunni snúist að miklu leyti um svokallað „leyniherbergi“ þar sem nefndarmenn utanríkismálanefndar geta einir kynnt sér ákveðin gögn sem bundin eru trúnaði.
„Ef það hefur verið markmið hjá þessari ríkisstjórn að stunda leyndarhyggju í þessu máli þá fær hæstvirt ríkisstjórn 9,5 af tíu mögulegum,“ sagði Guðlaugur.
Gagnrýndi Guðlaugur það jafnframt að ráðherrar ríkisstjórnarinnar hefðu ekki tekið þátt í umræðum um þingsályktunartillöguna. Þess má þó geta að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra er á mælendaskrá og mun því taka til máls í umræðum dagsins.