Fellibylurinn Bavi náði landi á austurströnd Kína síðdegis í gær. Nærri tvær milljónir voru fluttar á brott í aðdraganda fellibyljarins, flestir í Zheijang-héraði.
Neyðarsveitir í héraðinu hafa í dag notað gröfur og keðjusagir til þess að ryðja burt trjám sem féllu á götur í miklum vindi. Í borginni Yueqing féllu yfir 1.300 tré. Rúmlega helmingur þeirra rifnaði upp með rótum. Eftir mikla úrkomu urðu sums staðar aurskriður og vatnselgur olli víða usla.
Á leið sinni til Kína fór Bavi fram hjá Taívan. Slökkvilið landsins segir 134 hafa slasast í óveðrinu, flestir þeirra féllu af mótorhjólum eða urðu fyrir lausamunum sem fuku til.