Er það þess vegna sem þú elskar ESB

Helga Dögg Sverrisdóttir skrifar:
Hvað er það eiginlega sem gerir, að Danir (Íslendingar) elski ESB?
Er það af því ESB getur varið Dani í hernaði?
ESB getur ekki einu sinni varið sig sjálft án USA.
Er það af því ESB gerir okkur ríkari?
Evrópa dregst aftur úr miðað við USA og Kína, fyrirtæki fara og hinn almenni Dani finnur fyrir hærra vöruverði og kaupmáttaskerðingu.
Er það af því ESB verndar frelsið okkar?
ESB vinnur að því hörðum höndum að vaka yfir okkur, stjórna okkur og beita áhrifum sínum á vöktun hins almenna borgara.
Er það af því velferð okkar styrkist?
Þvert á móti. Neitunarvald okkar er í hættu og valdið flyst lengra frá Danmörku- til skrifræðisins í Brussel.
Er það af því við náum valdi á fjármálunum?
ESB býr til milljarða skuld, sem börn okkar og barnabörn munu borga í framtíðinni.
Hefur ESB stjórn á innflytjendum?
Landamærin eru opin, gæslan veik og afleiðingarnar enda hjá löndunum sjálfum.
Er það vegna þess að ESB er stöðugt?
Bandalagið vill taka inn fleiri fátæk lönd, um leið og reikningurinn fyrir uppbyggingu af Úkraínu getur vaxið í sögulegar stærðir.
Svo spurningin er:
Elska Danir í alvöru ESB fyrir það sem bandalagið er orðið?
Eða elska margir ímynd ESB, sem fjölmiðlar og stjórnmálamenn hafa selt þeim í áraraðir?
Kannski er vandamálið ekki, að Danir þekki sannleikann um ESB.
Kannski er vandamálið, þeir fá aldrei að vita sannleikann.
Heimild: Hans Jørgen Hansen | Facebook