Einkabíllinn er langvinsælasti ferðamáti Íslendinga. Á hverjum degi fara landsmenn 3,3 ferðir að meðaltali. Ganga og hjólreiðar færast hægt en örugglega í aukana.
Þetta kemur fram í ferðavenjukönnun sem gerð var á vegum innviðaráðuneytisins árið 2025. Þar segir að 73% allra ferða Íslendinga séu farnar á einkabíl og að hraði, þægindi og aðgengi ráði alla jafna vali fólks.
Ungir fara í fleiri daglegar ferðir en þeir sem eldri eru. Einstaklingar á aldrinum 18–24 ára fara flestar ferðir allra, eða um það bil fimm á dag. Þá færast svokallaðir virkir ferðamátar, ganga eða hjólreiðar, í aukana, sérstaklega þegar horft er til ferðavenja á höfuðborgarsvæðinu.
Notkun almenningssamgangna er almennt lítil og sér í lagi utan höfuðborgarsvæðisins. Mikill munur er á ferðavenjum eftir búsetu. Íbúar á landsbyggðinni reiða sig mun frekar á einkabílinn vegna lengri vegalengda og takmarkaðs framboðs almenningssamgangna.
Flestir landsmenn velja einkabílinn þegar ferðast er til vinnu eða skóla en mun fleiri kjósa að hjóla eða ganga þegar skroppið er í styttri ferðir innan heimahverfisins.