Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur fellt úr gildi synjun Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar (HMS) frá því fyrir mánuði síðan um að ljá eigendum þriggja sjávarjarða aðild að stjórnsýslumáli um umsókn um byggingarleyfi fyrir mannvirkjum til sjókvíaeldis í Seyðisfirði.
Sjávarjarðirnar sem um ræðir eru Austdalur, Brimnes, Dvergasteinn og Selstaðir í Seyðisfirði. Þær, ásamt félagasamtökunum VÁ!, kærðu í lok mars ákvörðun HMS um synjunina en úrskurðarnefndin vísaði frá kæru VÁ!
Félagið Kaldvík hf. áformar að hefja sjókvíaeldi í Seyðisfirði.
Beiðninni hafnað
25. mars síðastliðinn kröfðust kærendur þess að eigendum sjávarjarða „við nýtingarsvæði í Seyðisfirði“ yrði veitt aðild að stjórnsýslumáli um byggingarleyfi vegna sjókvíaeldis.
Tveimur dögum síðar var beiðninni hafnað með vísan til þess að „af gögnum málsins, þ.m.t. aðaluppdráttum og staðsetningu mannvirkja“ yrði ráðið að þau væru utan þeirra marka sem netlög sjávarjarða næðu til.
Einnig var í svarinu staðhæft að áhrifasvæði veiðibanns um fiskeldi skerti ekki fiskveiðirétt eigenda jarðanna, að því er segir í úrskurðinum.
Ítarlegri rök en áður
Í niðurstöðu úrskurðarnefndar kemur fram að við meðferð málsins virðist kærendur hafa fært fram nokkuð ítarlegri rök en áður fyrir aðild að stjórnsýslumálinu.
„Hafa þeir bent á ætluð grenndaráhrif við ráðgert fiskeldi og vísað til þynningaráhrifa frá ráðgerðri starfsemi, annarra umhverfisáhrifa og staðbundinna aðstæðna. Aðild að stjórnsýslumáli vegna ákvörðunar um veitingu byggingarleyfis ræðst af almennum reglum stjórnsýsluréttar um aðild. Gefa þessi sjónarmið tilefni til þess að HMS leggi heildstæðara mat á það hversu sérstaka og verulega hagsmuni einstakir kærendur í máli þessu hafi af úrlausn þess með tilliti til laga um mannvirki ,” segir í niðurstöðunni.
Því telur nefndin rétt að fella ákvörðun HMS úr gildi og beinir hún því kærendanna að færa fram greinargóðan rökstuðning um aðildarhagsmuni sína sem geti leitt til töku nýrrar ákvörðunar að undangenginni nægilegri rannsókn málsins.