Ebólafaraldurinn sem geisar í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó hefur kostað yfir 2.600 manns lífið, samkvæmt upplýsingum frá stjórnvöldum sem birtar voru í gær.
Fjöldi staðfestra smita er kominn yfir 5.500. Þetta er sautjándi ebólafaraldurinn sem herjar á Kongó og er hvort tveggja sá skæðasti og umfangsmesti hvað snertir fjölda tilfella.
Sameinuðu þjóðirnar hafa varað við þessari hröðu útbreiðslu og segja einn látast af völdum veirunnar á hálftíma fresti. Unnið er að þróun bóluefnis við því afbrigði sem nú geisar, sem gæti hið minnsta tekið nokkra mánuði.