Tveggja ár drengur sem leitað var að í Nyåker í Nordmaling í Svíþjóð í gærmorgun fannst seint í gærkvöld eftir að hafa verið saknað í 15 klukkustundir.
Haft er eftir lögreglu að drengurinn hafi verið orðinn svolítið kaldur en að honum heilsist þó vel.
Lögregla, fjallabjörgunarsveitir, hermenn, önnur neyðarþjónusta, hinir ýmsu sjálfboðaliðar leituðu að drengnum en m.a. var notast við leitarhunda, dróna og þyrlu.
„Við leituðum fyrst á nærliggjandi svæði. Í hverjum bíl, geymslu, húsi, ræsi og öllu mögulegu. Síðan stækkuðum við leitarsvæðið jafnt og þétt, sagði Roger Westerberg, aðgerðastjóri björgunarsveitar.
Lögregla verst fregna
Það var svo skömmu eftir klukkan 1 í nótt að sænskum tíma sem tilkynning barst frá lögreglu um að drengurinn væri kominn í leitirnar.
Lögregla verst fregna af málinu.
Fram kom í gær að enginn grunur væri uppi um refsivert athæfi en lögregla vill ekki tjá sig um það að svo stöddu hvort það hafi breyst.
Herstöðin í Umeå sendi um 50 herskylduliða og yfirmenn þeirra sem tóku þátt í leitinni.
„Herskylduliðar okkar eru fullþjálfaðir og verða útskrifaðir eftir nokkra daga. Þeir hafa góða hæfni til að vera úti í náttúrunni, góða sjúkraþekkingu og rata vel. Þeir eru frábær auðlind á vettvangi og það er auðvelt að skipuleggja þeirra vinnu, segir Peter Sedin, vakthafandi yfirmaður í herstöðinni í Umeå.
Fjöldi sjálfboðaliða tók þátt í leitinni. Andy Sundström frá Nordmaling frétti af týnda drengnum í Nyåker í gegnum staðbundinn Facebook-hóp.
„Þegar ég las að þetta væri barn, og ég á sjálfur börn, var það ekki skemmtilegur lestur. Það var bara að drífa sig af stað, segir hann.