Bandaríska þungarokkshljómsveitin Demon Hunter hefur höfðað mál á hendur Netflix vegna kvikmyndarinnar KPop Demon Hunters sem sló í gegn í fyrra.
Hljómsveitin segir líkindi nafnanna rugla neytendur og ógna vörumerki sem hún hefur byggt upp áratugum saman.
Þungarokkssveit ruglað saman við teiknimyndastjörnur
Demon Hunter er fimm manna kristin þungarokkshljómsveit frá Seattle. Tónlist sveitarinnar er lýst sem árásargjarnri en um leið tilfinningaþrunginni. Hljómsveitin gaf út sína tólftu breiðskífu í september og er með rúmlega 350 þúsund hlustendur á mánuði á Spotify.
Í tónlist Netflix-kvikmyndarinnar kveður við annan tón. Kpop Demon Hunters hófst sem teiknimynd Netflix um Kpop stúlknasveitina Huntr/X og kom út í september.
Tónlistin úr myndinni hefur farið sigurför um heiminn, mikið magn söluvarnings hefur verið framleitt og stefnt er að alþjóðlegu tónleikaferðalagi á næsta ári.
Um 27 milljónir hlusta á KPop Demon Hunters í hverjum mánuði. Þá vann lagið Golden úr kvikmyndinni Óskarsverðlaun á þessu ári, í flokki besta upprunalega lagsins.
Ætlaði á KPop tónleika en keypti óvart miða á þungarokk
Í málsgögnum heldur Demon Hunter því fram að Netflix Studios og tónleikafyrirtækið AEG Presents hafi valdið ruglingi meðal neytenda vegna líkinda nafnanna.
Þar er meðal annars vísað í tölvupóst frá manni sem sagðist hafa varið 500 bandaríkjadölum í miða á þungarokkstónleika í New York í þeirri trú að hann væri að fara á Kpop sýningu með börnin sín.
Hljómsveitin fer fram á að Netflix verði bannað að nota nafnið Kpop Demon Hunters fyrir útgefna tónlist, tónleika og söluvarning. Hún krefst þess einnig að streymisveitan greiði henni skaðabætur.