Margrét drottning hefur verið lögð inn á Ríkisspítalann í Kaupmannahöfn til meðferðar eftir að tölvusneiðmynd leiddi í ljós blóðsöfnun á mjaðmasvæðinu.Margrét drottning hefur verið lögð inn á Ríkisspítalann í Kaupmannahöfn til meðferðar eftir að tölvusneiðmynd leiddi í ljós blóðsöfnun á mjaðmasvæðinu.
Blóðsöfnunin er tilkomin vegna falls sem átti sér stað fyrir skömmu, að segir í fréttatilkynningu frá konungshöllinni, en danska ríkisútvarpið greinir frá.
Aðeins er tæp vika síðan drottningin var útskrifuð af sjúkrahúsi eftir að hún var lögð inn vegna hjartakveisu. Þá lá hún inni í sex daga.
Nú er ráð fyrir að Margrét drottning, sem er 86 ára, verði á sjúkrahúsi í nokkra daga, en fram kemur að henni líði vel miðað við aðstæður.