Burger King og 1954 ehf. hafa gert samning um uppbyggingu og rekstur Burger King-veitingastaða á Íslandi. Samkvæmt samningnum er stefnt að opnun fimm veitingastaða á næstu fimm árum. Áætlað er að fyrsti staðurinn opni vorið 2027 á þjónustustöð N1 við Bíldshöfða í Reykjavík.Burger King var áður á Íslandi frá 2004 til 2008, lokaði hann stuttu eftir hrun. Fram kemur í tilkynningu að félagið 1954 ehf. hafi tryggt sér sérleyfi Burger King á Íslandi. Að félaginu standa N1 og Skúli Gunnar Sigfússon, sem hefur áralanga reynslu af veitingarekstri á Íslandi.
Burger King snýr aftur til Íslands