Að sögn lögreglunnar fauk hjólhýsi á hliðina á norðanverðri heiðinni og hindraði umferð um veginn. Mjög hvasst var á svæðinu og viðbragðsaðilar komu á vettvang til að færa hjólhýsið. Engin slys urðu á fólki.
Tilkynnt var um atvikið á fimmta tímanum í dag, að sögn Jónasar H. Ottóssonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á Vesturlandi.
Fréttin var síðast uppfærð klukkan 17:29.