Ístex hefur boðið sauðfjárbændum að taka út vörur eins og ullarteppi, í stað þess að greiða þeim fyrir innsenda ull. Að greiða fyrir ull með ullarvörum Það er neyðarúrræði að sögn framkvæmdastjóra.
Í bréfinu sem bændur fengu í vikunni segir:
„Því miður neyðumst við til að tilkynna að Ístex hf. er ekki fært að inna af hendi hefðbundnar peningagreiðslur fyrir ullina að svo stöddu.“
Þess í stað eru tveir kostir boðnir: Að fá vörur frá fyrirtækinu upp í skuldina eða að skuldinni sé breytt að öllu leyti eða að hluta í hlutabréf í fyrirtækinu.
Síðustu tvö ár hafa verið ullarvinnslunni Ístex erfið. Skuldir hafa hlaðist upp þar sem fyrirtækið hefur ekki haft undan að greiða fyrir ull sem bændur hafa sent inn til vinnslu. Eins tók verðskráin dýfu. Verð til bænda lækkaði um tugi prósenta fyrir flestar tegundir ullar - og verðið fyrir mislita ull var núll krónur.
Sigurður Sævar Gunnarsson, framkvæmdastjóri Ístex, segir það slæmt að geta ekki greitt fyrir ullina - en nú verði að toga í alla spotta og leita allra leiða til að bæta skuldastöðuna.
Því býðst bændum að taka út vörur eða fá í staðinn hlut í félaginu.
„Auðvitað eiga menn að fá greitt eins og til var ætlast og þess háttar, þannig ég hef fullan skilning á því. Þannig það sem við reynum að gera, er að gera eins góða hluti og hægt er í erfiðum tímum“, segir framkvæmdastjórinn
Leysir ekki vandann en hentar vonandi einhverjum
Í heildina skuldar fyrirtækið um 200 milljónir, sem skiptist milli um 1.200 bænda. Bændur eiga nú þegar megnið af Ístex og Sigurður segir eðlilegt að skiptar skoðanir séu um í hvaða átt eigi að fara með reksturinn.
Að greiða skuldir með teppum, sængum og hlutabréfum leysi þó líklega ekki allan vandann, en með því nái þau vonandi í skottið á skuldum til bænda.
Hann segir loksins jákvæð teikn á lofti og telur að sala bæði erlendis og hér heima fari að taka við sér.
„Það eru oft miklar sveiflur, árið í fyrra var mjög stór niðursveifla. Sem lendir illa á okkur“, segir Sigurður. Hann bætir við að vorin séu yfirleitt þyngsti tími ársins í rekstrinum. Nú telji hann bjartari tíð fram undan.