Bætt brunatjón í fyrra nam 3,6 milljörðum króna sem er 23% lækkun frá árinu áður. Þetta kemur fram í samantekt Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.
Atvinnuhúsnæði bar hæstan kostnað, eða 2,1 milljarð króna, þar sem einn stórbruni hafði veruleg áhrif. 708 brunatjón voru tilkynnt á árinu, þar af voru rúmlega 290 í atvinnuhúsnæði.
Ekki er tekið fram hvaða bruna er átt við.
HMS segir að kostnaður af tilkynntu tjóni í atvinnuhúsnæði sé að meðaltali rúmlega tvisvar sinnum meiri en í íbúðarhúsnæði. Tilkynnt tjón í íbúðarhúsnæði og á heimilum voru alls 343 og nam bætt brunatjón vegna þess rúmlega 950 milljónum króna.