„Auð­veldara hér að vera bara eins og maður er“ - Vísir

„Auð­veldara hér að vera bara eins og maður er“ - Vísir

„Auð­veldara hér að vera bara eins og maður er“ - Vísir

„Það var í raun draumaskólinn minn, Royal College of Art, sem dró mig fyrst til London. Mig langaði að fara út fyrir þægindarammann og vera nær stærri hönnunarsenu. 

London togaði í mig því borgin er svo fjölbreytt og skapandi. Maður finnur fyrir því að allt geti gerst þar. Mér fannst borgin mjög yfirþyrmandi til að byrja með, allt svo stórt og flókið, og ætlaði því upphaflega bara að vera og klára námið, en svo þróaðist lífið bara áfram út frá því,“ segir Theodóra.

„Ég hef búið þar í fjórtán ár, sem er eiginlega ótrúlegt að hugsa til, þar sem þetta átti alls ekki að vera svona lengi fyrst. Svo byggðist lífið smám saman upp hérna.“

Hvað ertu að gera þar?

Ég rek mitt eigið hönnunarstúdíó þar sem ég vinn að húsgögnum og hlutum fyrir heimilið, ásamt því að kenna við Goldsmiths háskólann í London. Starfið mitt snýst mikið um efni, form og tenginguna sem fólk myndar við hluti með tímanum. 

Ég hef áhuga á hlutum sem safna í sig sögum bæði í gegnum notkunina og líka í gegnum það hvernig þeir urðu til. Mér finnst mikilvægt að hlutir beri með sér einhver merki ferlisins eða handverksins á bak við þá.

Theodóra var með sýningu í Mikado Reykjavík á HönnunarMars. Einar Guðmundsson

Hefurðu búið annars staðar erlendis?

Nei, London hefur eiginlega verið mitt annað heimili erlendis. En ég vann í Frakklandi eitt sumar og hef farið í vinnustofudvalir til Ítalíu og Sviss, ásamt því að ferðast mikið. Ég finn alltaf hvað mismunandi staðir hafa áhrif á hvernig maður sér form, liti og efni.

Hvernig hefur daglegt líf verið hjá þér í stórborginni?

Það er bæði mjög orkugefandi og mjög krefjandi. Sumir dagar eru fullir af fundum, vinnustofu, sýningum og fólki alls staðar að úr heiminum - og svo aðrir þar sem maður er bara einn inni í stúdíói að vinna mjög hægt og nákvæmt handverk. Það er ákveðin togstreita í því sem mér finnst líka góð.

Hvenær og hvernig byrjaðir þú í hönnun?

Ég hef alltaf verið mjög sjónræn og skapandi. Þegar ég var lítil ætlaði ég lengi að verða innanhússhönnuður eftir að hafa séð Mrs. Doubtfire. Mér fannst það sem mamman þar var að vinna við svo spennandi og stemningin eitthvað alveg heillandi. 

Svo þróaðist þetta yfir í áhuga á hlutum, efnum og formum. Ég prófaði mig áfram og áttaði mig á að vöruhönnun hentaði mér vel því þar fær maður að sameina hugmyndavinnu, handverk og tilfinningu fyrir rými, ásamt því að ferlið er oft hraðara en í arkitektúr eða innanhússhönnun.

Hvað veitir þér innblástur?

Mjög margt úr náttúrunni heima á Íslandi; birtan, þokan, svartur sandur, steinar og hvernig litir í landslaginu eru oft svo dempaðir en samt mjög sterkir. 

Ég sæki líka mikinn innblástur í efni sjálf, hvernig málmur eldist, hvernig viður tekur ljós og hvernig mismunandi efni breytast með tímanum. En líka bara eðli þeirra og eiginleika; hvað þau geta gert, hvernig þau hreyfa sig eða hvort þau vilja beygjast, halda formi eða gefa eftir. 

Oft byrja verkefnin hjá mér á því að skoða hvernig eitthvað er búið til eða hvernig efni hagar sér við mismunandi aðstæður, frekar en teikningu af ákveðnum hlut.

Hvað myndirðu segja að einkenni þína listsköpun?

Kannski ákveðin ró og einfaldleiki, en samt einhver mýkt eða leikur í formunum. Ég reyni að gera hluti sem eru bæði nytsamlegir og skúlptúrískir, eigulegir hlutir sem fólk vill hafa í kringum sig til lengri tíma.

Hvaða hverfi er í uppáhaldi og afhverju?

Oh, ég get eiginlega ekki valið bara eitt hverfi. London er byggð upp af mörgum mjög ólíkum hverfum sem hvert hefur sinn sjarma. Ég bjó lengi í Hackney í austur London, sérstaklega í kringum Stoke Newington, og það á alltaf sérstakan stað í hjarta mínu. 

Þar er fullt af litlum kaffihúsum, vinnustofum og fólki í skapandi greinum svo það er mjög huggulegt. Núna er ég flutt suður fyrir á, sem margir líta eiginlega á sem smá svik ef maður byrjaði í norður- eða austurhlutanum. 

Theodóra fer eigin leiðir í list og lífi, hér horfir hún á sjálfa sig í spegil sem hún hannaði.Einar Guðmundsson

Það var í raun eins og að flytja í alveg nýja borg, öðruvísi mannlíf og svæðin ekki jafn mikið „gentrified“. Það minnir mig smá á austur London eins og það var þegar ég flutti þangað fyrst.

Uppáhalds kaffihús og veitingastaður úti?

Í mínu nágrenni elska ég Rons fyrir kaffi og Mr. Bao fyrir mat, en meira miðsvæðis væri það Omotesando Koffee og annað hvort Tangra eða Ria’s fyrir mat. 

Svo finnst mér Rochelle Canteen alltaf mjög sérstakur staður. London er svo skemmtileg borg fyrir mat því maður getur fundið eitthvað nýtt alls staðar.

Hvernig er draumadagur fyrir þig úti?

Hægur morgun með góðu kaffi, ganga í vinnustofuna mína, vinna með höndunum eða prófa ný efni, hitta vini í hádeginu á pizzustað sem er í garði handan við hornið á vinnustofunni. 

Fara á sýningu eða gefa mér tíma í að lesa bók og enda svo daginn á góðum mat eða vínglasi einhvers staðar úti þegar það er enn bjart á sumrin.

Hvað er skemmtilegast við lífið úti?

Hvað maður kynnist ótrúlega mörgu fólki og sjónarhornum. Að búa í svona fjölbreyttri borg stækkar sjóndeildarhringinn manns mjög mikið og gerir mann líka umburðarlyndari og opnari. Maður er innan um alls konar fólk á hverjum degi og það hefur klárlega áhrif á hvernig maður sér heiminn.

London ýtir manni líka áfram. Það er smá svona „allir eru að hlaupa því allir eru að hlaupa“ stemning. En á sama tíma finnst mér líka auðveldara hér að vera bara eins og maður er, því enginn er alveg „normal“ hérna hvort eð er. 

Fólk fer svo ólíkar leiðir í lífinu og það eru margar mismunandi hugmyndir um hvað það þýðir að standa sig vel eða gera hlutina rétt. Það hefur verið mjög frelsandi á einhvern hátt.

En mest krefjandi?

Hraðinn og kostnaðurinn. Það getur verið mjög erfitt að byggja upp skapandi feril í borg þar sem allt er dýrt og samkeppnin mikil. Maður þarf svolítið að læra að vernda orkuna sína.

Hefurðu fundið fyrir heimþrá?

Já, strax á eftir fjölskyldunni heima kemur náttúran og birtan. Ég sakna líka þess hvað allt er nálægt á Íslandi, hvað margar boðleiðir eru einfaldari og hvað maður getur auðveldlega farið út í náttúruna. Það hefur klárlega áhrif á vinnuna mína líka.

Hvað er framundan?

Ég er nýlega búin að setja á laggirnar nýja línu af húsgögnum og hlutum undir mínu eigin nafni og er að þróa það áfram. Núna er fókusinn mikið á að stækka stúdíóið hægt og byggja upp sterkari alþjóðlega nærveru.

Hvað hefur komið þér mest á óvart við lífið úti?

Kannski hvað maður getur í raun fundið sér heimili annars staðar án þess að hætta að vera tengdur Íslandi. Ég held að maður verði svolítið blanda af báðum stöðum með tímanum.

Hvað er það steiktasta eða fyndnasta sem þú hefur lent í úti?

London er þannig borg að maður sér eitthvað undarlegt nánast daglega. Eitt sem kemur upp í hugann er þegar ég sá mann í göngutúr um garð hérna á heitum sumardegi með risastóran snák um hálsinn - og enginn kippti sér upp við það.

Sérðu fyrir þér að búa alltaf úti eða kallar Ísland á þig?

Ísland mun alltaf toga í mig. Ég hef aldrei gert neitt almennilegt plan um að vera hérna svona lengi, en tíminn líður og hér er mun auðveldara að vinna sem vöruhönnuður en á Íslandi. Hér er aðgengilegra að nálgast efnivið og ýmis konar framleiðslu til dæmis. 

Ég sakna þó fjölskyldunnar heima, hversdagslegri stunda með þeim og svo auðvitað sundlauganna. Ég gæti vel séð fyrir mér að reyna að skipta tíma mínum meira á milli í framtíðinni, eða jafnvel prófa að flytja á einhverjum tímapunkti.

Hvað stendur upp úr frá lífinu úti hingað til?

Að hafa byggt upp líf og feril frá grunni í borg sem getur verið mjög erfið en líka ótrúlega gefandi. Og svo allt fólkið alls staðar að úr heiminum sem ég hef kynnst í gegnum þetta, það er líklega það dýrmætasta.

#auðveldara #bara #eins #hér #vera


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262886542d/-aud-veldara-her-ad-vera-bara-eins-og-madur-er-

📰 Aðrar fréttir

Að­dá­endur í­trekað farið yfir mörk - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 1
Að­dá­endur í­trekað farið yfir mörk - Vísir
„Það var ömurlegt. Það er svo mikið stress að starta svona túrum. Maður er bara á fullu og maður er ekki búinn að spila í langan tíma og það er allt a...
Vonast til að geta leyst ráðgátuna um Ameliu Earhart
📅 11.10.2026 👁️ 2
Vonast til að geta leyst ráðgátuna um Ameliu Earhart
Vísindafólk frá bandarískri stofnun um fornleifaarfleið, Archaeological Legacy Institute, og Purdue-háskóla kemur til Nikumaroro-eyju í Kyrrahafi á má...
Fjölskylduharmleikur í Pennsylvaníu
📅 11.10.2026 👁️ 2
Fjölskylduharmleikur í Pennsylvaníu
Maður á fimmtugsaldri skaut sjö ættingja sína og fjölskylduvin á heimili í borginni Erie í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum í gær, áður en hann tók sitt e...
Justice Department investigating television networks over Trump pool coverage
📅 11.10.2026 👁️ 3
Justice Department investigating television networks over Trump pool coverage
The White House had blocked access for CNN, MS Now and Politico, leading them to restrict pool coverage.
UK launch flood taskforce to prepare for extreme winter weather
📅 11.10.2026 👁️ 3
UK launch flood taskforce to prepare for extreme winter weather
The Environment Agency has warned approximately 6.3 million homes and businesses in England remain at risk of flooding.
Heimila losun á fjórum milljónum tunna af hráolíu vegna fellibylsins Isaias
📅 11.10.2026 👁️ 3
Heimila losun á fjórum milljónum tunna af hráolíu vegna fellibylsins Isaias
Fellibylurinn Isaias sem skall að landi við Flórída og Alabama í gær hefur raskað olíuframleiðslu Bandaríkjanna við strendur Mexíkóflóa.Orkumálaráðher...
Hútar sagðir á­byrgir fyrir á­rás á flug­völl - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Hútar sagðir á­byrgir fyrir á­rás á flug­völl - Vísir
Samkvæmt umfjöllun Reuters særðust 309 manns og voru sumir þeirra fluttir á sjúkrahús í lífshættu. Árásin hafi verið gerð fyrirvaralaust og er þetta s...
Þúsundir mótmælenda sagðir hafa verið handteknir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Þúsundir mótmælenda sagðir hafa verið handteknir
Þúsundir mótmælenda voru handteknir í Nýju-Delí, höfuðborg Indlands, í dag þegar mótmælt var breytingum á kjörskrá landsins. Þetta kemur fram í tilkyn...
Blackpink’s Lisa Manobal: How the K-pop star faced a race scandal
📅 10.10.2026 👁️ 4
Blackpink’s Lisa Manobal: How the K-pop star faced a race scandal
Film-maker Sue Kim talks about having unprecedented access to K-Pop idol Lisa Manobal at her most candid.
AI is creating a 'human premium' for art created by people
📅 10.10.2026 👁️ 4
AI is creating a 'human premium' for art created by people
Amid a surge in AI content, many are placing extra value on art that's obviously made by a human. But can that last, asks Ros Atkins
Plan 2: Three friends on a decade of student loans
📅 10.10.2026 👁️ 4
Plan 2: Three friends on a decade of student loans
Lizzy, Charlotte and Libby studied at the same time, but their student debt now looks very different.
MPs attempt to overturn ruling which protects police from being sued
📅 10.10.2026 👁️ 4
MPs attempt to overturn ruling which protects police from being sued
MPs are seeking to stop immunity applying when police fabricate evidence or are dishonest or negligent.
Fjórir fórust af völdum fellibyljarins Isaias
📅 10.10.2026 👁️ 5
Fjórir fórust af völdum fellibyljarins Isaias
Að minnsta kosti fjórir fórust af völdum fellibyljarins Isaias sem skall á strönd Flórída og Alabama í gærkvöld.Dregið hefur úr krafti Isaias en enn e...
Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Bratta­hlíð Ei­ríks rauða - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Bratta­hlíð Ei­ríks rauða - Vísir
Í fréttum af fornleifafundinum í síðustu viku kom fram að menn hafi lengi grunað að þarna væri kirkjurúst frá tímum norrænu byggðarinnar. Sönnunin vær...
Tóku samtalið um land allt
📅 10.10.2026 👁️ 4
Tóku samtalið um land allt
„Samtalið“ svokallaða fór fram í dag, þar sem fólk hittist, ræddi framtíðina og hvernig samfélag það vill. Verkefnið heitir „Tölum saman“ og varð til ...
Út­skrifuð af sjúkra­húsi og send aftur í fangelsið - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 5
Út­skrifuð af sjúkra­húsi og send aftur í fangelsið - Vísir
Hin fimmtuga Pike lifði af tvær banvænar sprautur sem hún fékk á miðvikudaginn í síðustu viku í Tennessee í Bandaríkjunum. Hún komst aftur til meðvitu...
Tveir látnir eftir árás á alþjóðaflugvöll í Sádi-Arabíu
📅 10.10.2026 👁️ 5
Tveir látnir eftir árás á alþjóðaflugvöll í Sádi-Arabíu
Að minnsta kosti tveir eru látnir eftir árás á King Khalid-alþjóðaflugvöllinn í Ríad í Sádi-Arabíu í dag. Frá þessu greinir AFP-fréttastofan og hefur ...
Tólf látnir eftir árás á alþjóðaflugvöll í Sádi-Arabíu
📅 10.10.2026 👁️ 4
Tólf látnir eftir árás á alþjóðaflugvöll í Sádi-Arabíu
Að minnsta kosti tólf manns eru látnir og 309 særðir eftir árás á King Khalid-alþjóðaflugvöllinn í Ríad í Sádi-Arabíu í dag, að sögn flugmálayfirvalda...
Kalla eftir að­gerðum ekki yfir­lýsingum - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 5
Kalla eftir að­gerðum ekki yfir­lýsingum - Vísir
„Íslensk stjórnvöld voru nýlega meðal 12 ríkja sem sendu frá sér yfirlýsingu um fyrirhugaðar aðgerðir gegn viðskiptum með vörur frá ólöglegum landtöku...
Vill auka að­gengi að verkja­lyfjum - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Vill auka að­gengi að verkja­lyfjum - Vísir
Nú fást lausasölulyf að jafnaði í apótekum. Lyfjastofnun getur þó leyft verslunum að selja ákveðin lyf ef meira en tuttugu kílómetrar eru í næsta apót...
Northern Lights: Aurora stun UK down to England's south coast
📅 10.10.2026 👁️ 4
Northern Lights: Aurora stun UK down to England's south coast
The natural phenomenon, known as the Aurora Borealis, is the result of increased solar activity.
Tvær milljónir manna í landfræðilegu búri
📅 10.10.2026 👁️ 4
Tvær milljónir manna í landfræðilegu búri
Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri Unicef á Íslandi, segir líflína fólks á Gaza að fólk muni eftir þeim, fjármagni hjálp sem það þurfi og ýti á st...
Vill nýjan Úkraínuforseta - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Vill nýjan Úkraínuforseta - Vísir
Í gær greindi Trump frá samkomulagi sínu við Vladímír Pútín Rússlandsforseta um að Rússar hefji þegar í stað útflutning á hundruðum þúsunda tonna af d...
„Ég sé ekki að ís­lenskt sam­félag vilji kasta því fyrir róða“ - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
„Ég sé ekki að ís­lenskt sam­félag vilji kasta því fyrir róða“ - Vísir
Kennarasamband Íslands boðaði til blaðamannafundar í vikunni þar sem sambandið kynnti stefnumótun og áherslur í menntamálum. Kallaði sambandið eftir s...
Mestu skiptir að engan sakaði
📅 10.10.2026 👁️ 4
Mestu skiptir að engan sakaði
Innan við tvær klukkustundir tók að slökkva eldinn í álverinu í dag og var kerskáli tekinn úr rekstri á meðan.„Það er ekki vitað að svo stöddu hvað ol...
Frá dísilsamningi við Pútín til ákalls Trumps um nýjan forseta Úkraínu
📅 10.10.2026 👁️ 4
Frá dísilsamningi við Pútín til ákalls Trumps um nýjan forseta Úkraínu
Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði við fréttamenn fyrir utan Hvíta húsið í dag að hann teldi kominn tíma til að Úkraína fengi nýjan forseta. Hann la...
K-kúrfu hagkerfið
📅 10.10.2026 👁️ 4
K-kúrfu hagkerfið
K-kúrfu hagkerfið Verð­bólga var ekki til­kom­in vegna launa og eyðslu neðri hluta K-leggs­ins í hag­kerf­inu, held­ur vegna að­gerða at­vinnu­lífs­in...
Lést eftir á­rás tígris­dýrs í dýra­garði - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Lést eftir á­rás tígris­dýrs í dýra­garði - Vísir
Lögreglunni barst tilkynning um að maðurinn hefði farið inn á girt svæði klukkan hálf tvö að staðartíma í dag. Í kjölfarið hafi tígrisdýrið ráðist á m...
Erum að horfa á vendipunkt í verðbólgunni
📅 10.10.2026 👁️ 4
Erum að horfa á vendipunkt í verðbólgunni
Hvert einasta sæti var skipað og rúmlega það á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar í dag. Ræða formannsins og forsætisráðherrans bar heitið Styrk hö...
Four dead and thousands without power after Hurricane Isaias lashes US
📅 10.10.2026 👁️ 5
Four dead and thousands without power after Hurricane Isaias lashes US
Roofs were ripped off buildings after Isaias barrelled into the US on Friday evening, before it weakened to a post-tropical cyclone.
Karlmaður lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði
📅 10.10.2026 👁️ 5
Karlmaður lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði
Karlmaður er látinn eftir árás tígrisdýrs í dýragarði skammt frá borginni Doncaster í Jórvíkurskíri á Englandi. Lögregla segir manninn hafa farið inn ...
Vilja bíla­stæðin upp úr skot­gröfunum - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 5
Vilja bíla­stæðin upp úr skot­gröfunum - Vísir
Meðal bílastæðanna fimmtán sem verða tekin aftur í notkun eru tvö við Kaffi Babalú á Skólavörðustíg þar sem fréttamaður hitti þær Guðnýju Maríu Jóhann...
Níu létust eftir skot­á­rás - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 5
Níu létust eftir skot­á­rás - Vísir
Lögregla var komin á vettvang aðeins örfáum mínútum eftir að tilkynning barst henni um skothvelli úr íbúðarhúsi. Allir níu voru þegar látnir þegar lög...
Smári og Linda muna vel eftir opnun Smáralindar
📅 10.10.2026 👁️ 5
Smári og Linda muna vel eftir opnun Smáralindar
Verslunarmiðstöðin Smáralind var opnuð á þessum degi fyrir 25 árum. Smári úr Smáraskóla og Linda úr Lindaskóla fengu þann heiður að opna þessa stærstu...
Expedition hopes to find aviator Amelia Earhart's plane on remote island
📅 10.10.2026 👁️ 5
Expedition hopes to find aviator Amelia Earhart's plane on remote island
The team en route to the suspected crash site aim finally to solve the mystery of her 1937 disappearance.
Á annað hundrað sektaðir - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 5
Á annað hundrað sektaðir - Vísir
Um helgina fer fram sýningin Íslenskur landbúnaður 2026 í Laugardalshöll en fagsýningarfyrirtækið Ritsýn stendur fyrir sýningunni. Hátt í hundrað sýne...
New selfie spot in Corralejo made from 100% recycled plastic
📅 10.10.2026 👁️ 5
New selfie spot in Corralejo made from 100% recycled plastic
Visitors to Corralejo have a new place to capture their holiday photographs following the installation of a tourist selfie spot made entirely from rec...
Trump vill að Úkraína skipti um forseta
📅 10.10.2026 👁️ 5
Trump vill að Úkraína skipti um forseta
Donald Trump Bandaríkjaforseti vill að Úkraínumenn velji sér annan forseta sem geti bundið enda á stríð landsins við Rússland.Hann er Volodomyr Zelens...
Kristrún Frostadóttir: Þrátt fyrir nei „lokum við að sjálfsögðu ekki á Evrópu“
📅 10.10.2026 👁️ 4
Kristrún Frostadóttir: Þrátt fyrir nei „lokum við að sjálfsögðu ekki á Evrópu“
Kristrún Frostadóttir: Þrátt fyrir nei „lokum við að sjálfsögðu ekki á Evrópu“ For­sæt­is­ráð­herra seg­ir að nið­ur­staða þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­un...
Þrátt fyrir nei „lokum við að sjálfsögðu ekki á Evrópu“
📅 10.10.2026 👁️ 5
Þrátt fyrir nei „lokum við að sjálfsögðu ekki á Evrópu“
Kristrún Frostadóttir: Þrátt fyrir nei „lokum við að sjálfsögðu ekki á Evrópu“ For­sæt­is­ráð­herra seg­ir að nið­ur­staða þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­un...
Þrír réðust á einn - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Þrír réðust á einn - Vísir
Er þetta meðal þeirra mála sem skráð eru í kerfi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu frá því í dag. Líkamsárásin átti sér stað í umdæmi lögreglustöðvar ...
'Time for Ukraine to get new president,' says Trump after Zelensky condemns diesel deal
📅 10.10.2026 👁️ 4
'Time for Ukraine to get new president,' says Trump after Zelensky condemns diesel deal
Ukraine's leader had said the deal with Russia to release diesel into the US would help Moscow fund the war.
Kirkjugestir mæta í þjóðbúningum
📅 10.10.2026 👁️ 4
Kirkjugestir mæta í þjóðbúningum
Nokkrar þjóðbúningamessur hafa verið haldnar í sunnlenskum kirkjum síðustu ár og hafa þær heppnast einstaklega vel og margir mætt í þjóðbúningum. Pres...
Aftur í fangelsi eftir misheppnaða aftöku
📅 10.10.2026 👁️ 4
Aftur í fangelsi eftir misheppnaða aftöku
Christa Pike, 50 ára bandarísk kona sem lifði af tvær aftökutilraunir með banvænni sprautu í Tennessee-ríki í Bandaríkjunum, hefur verið útskrifuð af ...
Man dies after tiger attack at Yorkshire Wildlife Park
📅 10.10.2026 👁️ 4
Man dies after tiger attack at Yorkshire Wildlife Park
The visitor attraction near Doncaster was evacuated on Saturday and remains closed for the weekend.
Aníta Briem á von á þriðja barninu
📅 10.10.2026 👁️ 5
Aníta Briem á von á þriðja barninu
Leikkonan Aníta Briem og Hafþór Waldorff, eiga von á sínu öðru barni saman. Fyrir eiga þau dótturina Lúnu, sem fæddist í nóvember 2024. Parið gekk í g...
Á­kvað strax að hann ætlaði ekki að fela stómað - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 5
Á­kvað strax að hann ætlaði ekki að fela stómað - Vísir
„Ég eyddi öllu sumrinu á spítala því ég lenti í því að fá ristilpoka sem sprakk og gerði gat á ristilinn á mér, með tilheyrandi sýkingum og veseni. Ég...
Forsetaframbjóðandi hafnar því að vera handvalinn af Höllu
📅 10.10.2026 👁️ 5
Forsetaframbjóðandi hafnar því að vera handvalinn af Höllu
Frambjóðendur til forseta Alþýðusambands Íslands hafna því að þeir séu fulltrúar ólíkra fylkinga innan sambandsins.Arnaldur Grétarsson, sérfræðingur í...
Gengu kröfugöngu niður Laugaveg í tilefni alþjóðlegs aðgerðadags fyrir Palestínu
📅 10.10.2026 👁️ 5
Gengu kröfugöngu niður Laugaveg í tilefni alþjóðlegs aðgerðadags fyrir Palestínu
Fjöldi fólks gekk kröfugöngu frá Hlemmi að Austurvelli í tilefni alþjóðlegs aðgerðadags fyrir Palestínu í dag, 10. október.Í tilkynningu Félagsins Ísl...
Milljónavirði af rauðvíni stolið úr vöruhúsi í Toskana
📅 10.10.2026 👁️ 5
Milljónavirði af rauðvíni stolið úr vöruhúsi í Toskana
Óprúttnir þjófar stálu eðalvínum sem talið er fimm milljóna evra, jafnvirði um 687 milljóna króna, virði úr stærsta vöruhúsi hinnar nafntoguðu Marches...