Landsmenn flykkjast nú óðum á Austurlandið þar sem miklu blíðviðri er spáð um helgina en á Egilsstöðum er til að mynda spáð 26 gráðum og sól síðdegis á morgun.
Tjaldsvæðin í Atlavík og Höfðavík í Hallormsstaðaskógi eru óðum að fyllast en Sigurjón Lindar Benediktsson tjaldvörður segir símann hafa verið á fullu síðustu daga.
„Það er dálítið troðið núna eins og er. Það eru öll stæðin sem er hægt að bóka fyrirfram og rafmagn og svoleiðis eiginlega alveg uppbókað fyrir helgina og er fljótt að fara ef eitthvað losnar,“ segir hann en bætir við að einstaka pláss sem hægt er að bóka á staðnum séu laus.
„Svo verða alltaf svona skipti um miðjan daginn, þá fara einhverjir og nýir koma.“
Þá segir Sigurjón að tjaldsvæðið hafi aldrei verið jafn þéttsetið í sumar enda hafi það verið nokkuð kalt fram að þessu á austurlenskum mælikvarða.
Nóg af lausum plássum enn
Á Seyðisfirði er 25 gráðum spáð á morgun en umsjónarmaður tjaldsvæðisins þar segir að enn sé nóg af lausu plássi á svæðinu.
Þar er ekki hægt að bóka tjaldstæði fyrirfram en hann gerir fastlega ráð fyrir að allt fari að fyllast síðdegis og í kvöld og að svæðið verði þétt setið um helgina.