Heiðrún Vala Hilmarsdóttir ákvað strax í upphafi skólagöngu sinnar í Kvennaskólann í Reykjavík haustið 2023 að hún ætlaði ekki að liggja yfir námsbókunum alla menntaskólagönguna, heldur gefa sér tíma til þess að sinna félagsstörfum, sellónámi og eiga góðar stundir með vinkonum sínum.
Sú ákvörðun kom hins vegar síður en svo niður á námsárangri hennar, enda kom í ljós við útskriftarathöfn Kvennaskólans í Reykjavík síðastliðinn föstudag að hún hafði dúxað skólann með 9,9 í lokaeinkunn.
„Þetta kom mér alveg smá á óvart, þó ég hafi alveg vitað að ég væri með góða meðaleinkunn,“ segir Heiðrún Vala í samtali við mbl.is. „Það er svo svakalega mikið af rosalega klárum krökkum í Kvennó. En já, ég vissi alveg að þetta væri möguleiki.“
Dýrmætur tími fyrir annað en nám
Heiðrún Vala hefur sannarlega ekki setið auðum höndum á þriggja ára menntaskólagöngu sinni, en utan skóla lagði hún stund á fullt klassískt sellónám og stefnir að því að ljúka við framhaldspróf á hljóðfærið að lokinni árspásu og er virk í ungliða- og ungmennahreyfingum á borð við Amnesty International og UN Women.
„Ég eyddi alveg töluverðum tíma í að læra líka, en var samt dugleg að vera með vinkonum mínum, taka þátt í félagsstörfum og gera eitthvað skemmtilegt inn á milli,“ segir hún.
„Ég tók ákvörðun um að ég ætlaði ekki bara eitthvað að liggja yfir námsbókunum allan menntaskólatímann, af því að þetta er svo dýrmætur tími til þess að eiga með vinum sínum og hafa gaman.“
Stefnir rakleiðis í lögfræðina
Félagsfræði og lögfræði voru í sérstöku uppáhaldi hjá Heiðrúnu Völu, sem brautskráðist af félagsvísindabraut á föstudaginn sem leið og hlaut viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur í félagsfræði, og stefnir hún rakleiðis í nám við lögfræðideild Háskóla Íslands í haust.
„Félagsfræðin var í miklu uppáhaldi hjá mér, og lögfræðin líka, en ég hafði mikinn áhuga á eiginlega öllum áföngunum sem ég var að læra og lagði mig jafnt og þétt fram yfir önnina í náminu,“ segir hún.
Að launum fyrir hinn framúrskarandi námsárangur hlaut Heiðrún Vala verðlaun úr Minningarsjóði frú Þóru Melsteð og viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur í félagsfræði.
Þá hlaut hún einnig menntaverðlaun Háskóla Íslands sem veitt eru nemanda sem hefur sýnt framúrskarandi árangur á stúdentsprófi auk þess að hafa náð eftirtektarverðum árangri á sviði lista eða íþrótta eða átt mikilvægt framlag til skólafélaga eða skólans.




