Aðalsteinn Einarsson hefur verið ráðinn sölustjóri hjá Eirvík. Hann hefur starfað hjá fyrirtækinu undanfarin átta ár sem sölufulltrúi. Eirvík er fjölskyldufyrirtæki, stofnað 1994, sem sérhæfir sig í sölu á heimilistækjum og innréttingum. Eirvík sameinaðist nýverið ProGastro sem býður upp á spennandi og fjölbreytt vöruúrval fyrir stóreldhús, fyrirtækjarekstur og heimili.
„Ég hóf störf hér 2018 eftir að hafa starfað víða við sölustörf sem ég hef brennandi áhuga á. Hér innandyra hef ég gengið í helstu verkefni en ég hef alltaf haft mestan áhuga á sölunni og að fá að taka þátt í skemmtilegum verkefnum með okkar viðskiptavinum. Það eru forréttindi að fá að starfa á svo góðum vinnustað með frábæru samstarfsfólki og bjóða viðskiptavinum upp á þau gæði sem Miele, SMEG og fleiri birgjar standa fyrir. Það eru bjartir tímar fram undan og ég er spenntur að taka við nýju hlutverki hér innanhúss og vonast ég til að orka mín, áhugi og reynsla komi að góðum notum,“ segir Aðalsteinn.