Tólf ára drengur slasaðist í Ævintýragarðinum, í hjólabraut sem heitir Flækjan. Hann var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild með skurð á læri.
Hann er ekki talinn alvarlega slasaður.
Ævintýragarðurinn er útivistarsvæði sem staðsett er í Ullarnesbrekkum, á milli Varmár og Leirvogstungu.