Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti kveðst eiga von á friðarnefnd á vegum Bandaríkjanna til Kyiv á næstu dögum. Hann sagði dagsetningu hafa verið ákveðna til bráðabirgða en tilgreindi hana ekki.
Zelensky lét þessi orð falla í daglegu ávarpi sínu og kvaðst hafa átt í daglegum samskiptum við starfshóp Úkraínustjórnar sem undirbúið hafi fundinn.
Forsetinn sagði jafnframt að Bandaríkjamenn hefðu staðfest að fundað yrði í Úkraínu og einnig með ráðamönnum í Moskvu. Zelensky sagði þetta góð tíðindi enda væri mikilvægt að Bandaríkjamenn tækju þátt í viðræðunum af einurð.
Úkraínski utanríkisráðherrann Andrii Sybiha og Vladimír Pútín Rússlandsforseti hafa báðir lýst von um að unnt verði að ná árangri í friðarviðræðum.
Zelensky ítrekaði jafnframt ákall eftir loftvarnarkerfum og greindi frá drónaárás Rússlandshers á verksmiðju Coca Cola nærri Kyiv sem hann kvað skýr skilaboð til Bandaríkjanna. Gosdrykkjaframleiðandinn væri það mikill óvinur Rússa að þeir kveiktu í henni með Shahed-drónum.