Yngsta syst­kinið fjögurra ára og það elsta fimm­tíu og fimm - Vísir

Yngsta syst­kinið fjögurra ára og það elsta fimm­tíu og fimm - Vísir

Yngsta syst­kinið fjögurra ára og það elsta fimm­tíu og fimm - Vísir

Fegurðarsamkeppnin Ungfrú Ísland verður haldin í ellefta skiptið þann 22. apríl næstkomandi og fer fram í Gamla bíói þar sem Eva Ruza verður kynnir. Keppendur eru tuttugu talsins og etja kappi um að verða fulltrúi Íslands í Ungfrú alheimi sem fer fram í Puerto Rico í lok árs.

Lífið á Vísi ræðir við stúlkurnar sem keppast um titilinn Ungfrú Ísland í ár og fær að kynnast þeim aðeins betur. Ungfrú Ísland verður í beinni útsendingu þann 22. apríl í sjónvarpi Vísis.

Lærði að vera sín eigin fyrirmynd

Anna María Eiríksdóttir er tuttugu og eins árs Selfoss-mær. Hún útskrifaðist úr grunnskóla með viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur í ensku, sem hún tók á framhaldsskólastigi í tíunda bekk, en hefur síðan tekið sér pásu úr framhaldsskóla til að hlúa að geðheilsu sinni. Hún starfar í dag sem deildarstjóri í Jysk.

Hvað kæmi fólki mest á óvart að vita um þig?

Örugglega það að ég eigi sjö systkini og að sú yngsta sé fjögurra ára og sú elsta fimmtíu og fimm!

Anna María Eiríksdóttir er ein sjö systkina en það yngsta er fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm ára. Sjálf er hún tuttugu og eins árs.Aðsend

Hver er þinn mesti ókostur?

Minn mesti ókostur hefur verið að ég átti til að efast um sjálfa mig og halda aftur af mér. En ég hef unnið mikið í því og lært að stíga frekar fram og treysta mér, jafnvel þegar ég er ekki alveg viss.

Hver er fyrirmynd þín í lífinu (sem er ekki ættingi )?

Ég hef ekki haft eina ákveðna fyrirmynd í lífinu, margar koma til greina t.d, Zendaya því hún er alltaf hún sjálf og mjög örugg í því, hún talar oft um mikilvæg málefni og notar sitt platform fyrir góða hluti, en ég hef sótt innblástur úr mismunandi áttum. Á sama tíma hef ég þurft að læra að treysta sjálfri mér og verða mín eigin fyrirmynd á minni vegferð.

Hlustar á tónlist til að takast á við stress

Hvað hefur mótað þig mest?

Það sem hefur mótað mig mest er að hafa gengið í gegnum tímabil þar sem mér leið eins og ég væri ein í því sem ég var að ganga í gegnum. Á þeim tíma lærði ég að á endanum þarftu sjálf að taka ábyrgð á þinni leið. En eftir allan þann tíma sem ég hélt að ég væri ein áttaði ég mig á því að ég var alltaf með stuðning frá mínum nánustu. Ég þurfti bara að leyfa þeim að vera til staðar.

Það kenndi mér að þótt enginn gæti gengið leiðina fyrir þig, þá sértu aldrei raunverulega ein.

Hver er mesta áskorunin sem þú hefur þurft að takast á við og hvernig komstu þér í gegnum hana?

Ein af stærstu áskorunum sem ég hef tekist á við er kvíði og það að eiga erfitt með að stíga fram. Það var tími þar sem jafnvel litlar aðstæður gátu verið yfirþyrmandi fyrir mig.

Ég komst í gegnum það með því að taka eitt skref í einu og hætta smám saman að halda aftur af mér. Í dag hugsa ég öðruvísi um sjálfa mig, og það hefur haft jákvæð áhrif á hvernig ég mæti öðrum.

Anna María segist stundum bregða á það ráð að mála myndlistarverk þegar álagið er mikið.Aðsend

Hver er þín mesta gæfa í lífinu?

Mín mesta gæfa í lífinu er fólkið mitt. Fjölskyldan mín og þeir sem standa mér næst og hafa orðið eins og fjölskylda. Stuðningurinn sem ég fæ frá þeim er ómetanlegur. Og svo eru það líka kettirnir mínir, sem eru mér eins og börn, þau færa mér svo mikla hamingju og ég myndi gera bókstaflega allt fyrir þau.

Hvernig tekstu á við stress og álag?

Þegar ég upplifi stress kveiki ég oft á tónlist. Stundum syng ég, dansa kannski með og stundum sest ég niður og mála. Ég fer í rauninni bara að sinna áhugamálunum mínum. það hjálpar mér að róa hugann og vinna úr því sem ég er að upplifa.

Finnst fallegt að sjá persónuleika fólks skína

Besta heilræði sem þú hefur fengið?

Að bera mig ekki saman við aðra og leyfa mér að fara mína eigin leið.

Neyðarlegasta atvik sem þú hefur lent í?

Þegar ég var lítil fékk ég bleik glimmergúmmístígvél með feld að innan, ég var sko ástfangin! Einn daginn braut ég óvart glerkrukku beint fyrir utan útidyrahurðina og varð svo stressuð yfir því að eyðileggja stígvélin að ég fór bara úr þeim og labbaði berfætt yfir glerbrotin... sá eftir því um leið! Í dag get ég ekki annað en hlegið að þessu.

Býrðu yfir einhverjum hæfileika?

Ég hef mikinn áhuga á að mála og tjá mig á skapandi hátt.

Hvað finnst þér heillandi í fari fólks?

Þegar fólk er óhrætt við að vera það sjálft. Mér finnst svo fallegt að sjá persónuleika fólks skína.

En óheillandi?

Mér finnst óheillandi þegar fólk er óheiðarlegt og kemur illa fram við aðra.

Anna segir að eitt það dýrmætasta sem hún eigi séu kisurnar sínar. Ef hún ynni milljarð myndi hún opna dýraathvarf alveg um leið.Aðsend

Hver er þinn helsti ótti? 

Fyrir þremur árum hefði ég sagt að standa á sviði fyrir framan tugi manna, eða jafnvel standa fyrir framan bekkinn og flytja verkefni, en núna í dag myndi ég segja að minn helsti ótti sé það að leyfa óvissu og neikvæðum hugsunum að halda mér aftur og missa af tækifærum á meðan ég er föst í kvíða. Þess vegna legg ég mikla áherslu á að halda áfram að stíga fram, þrátt fyrir óttann.

Hvar sérðu þig eftir 10 ár?

Eftir tíu ár sé ég mig gera það sem ég hef ástríðu fyrir og vera sýnileg í því sem ég tek mér fyrir hendur. Fyrir mér snýst þetta ekki bara um hvað ég geri, heldur um að taka mitt pláss og lifa lífinu til fulls.

Hver er frægasti einstaklingur sem þú hefur hitt? 

Páll Óskar þegar ég var ellefu á Akureyri.

Ef þú fengir milljarð til umráða, hvað myndirðu gera við peningana? 

Ég myndi opna dýraathvarf!

Vill vera sú manneskja sem hún hefði þurft að sjá

Hver er uppáhaldsbókin þín?

Ég er ekki mikið fyrir bækur, en ég ólst upp við það að pabbi sagði mér sögur úr sinni barnæsku, og þær höfðu mikil áhrif á mig. Þrátt fyrir að ég lesi ekki mikið hef ég alltaf haft gaman af því að hlusta á sögur fólks. Þegar ég var lítil og fór með mömmu í vinnuna hennar á elliheimili gat ég setið lengi og hlustað á endalausar sögur frá fólkinu sem dvaldi þar. Mér finnst það dýrmætt, því sögur fólks kenna manni oft meira en maður heldur, og á einhvern hátt finnst mér þær lifa lengur en bækur.

Hvað var það sem vakti áhuga þinn á keppninni?

Áhuginn minn á keppninni kviknaði út frá reynslu sem hafði mikil áhrif á mig. Einhver sem stóð mér nærri gekk í gegnum erfiða tíma, og það fékk mig til að átta mig á því hversu mikilvægt það er að hafa fyrirmyndir og fólk sem hægt er að líta upp til.

Síðan þá hef ég fundið sterka þörf til að stíga fram og vera sú manneskja sem ég hefði sjálf þurft að sjá.

Anna María telur að titillinn geti veitt þeim sem hann hljóta tækifæri til að hafa jákvæð áhrif á stórum skala.Aðsend

Hvaða samfélagslega málefni brennur þú fyrir?

Það samfélagslega málefni sem ég brenn fyrir er geðheilsa, sérstaklega meðal barna og ungmenna. Ég tel að það sé gríðarlega mikilvægt að skapa umhverfi þar sem ungt fólk finnur fyrir stuðningi og skilningi, því að það sé í lagi að tala um hvernig manni líður og að það sé einhver að hlusta.

Þetta málefni er mér persónulegt og hefur haft mikil áhrif á mig, og þess vegna vil ég leggja mitt af mörkum til að auka vitund og opna umræðuna.

Hvaða kostum þarf Ungfrú Ísland að búa yfir? Ungfrú Ísland þarf að vera einlæg, geta tengst fólki, og vera hún sjálf. Hún þarf líka að standa með sjálfri sér og nýta rödd sína á jákvæðan hátt. Þetta eru eiginleikar sem ég legg mikla áherslu á og vinn út frá.

Hefur gengið í gegnum margt

Af hverju sækist þú eftir því að vera næsta Ungfrú Ísland?

Ég sækist eftir því að vera næsta Ungfrú Ísland vegna þess að ég trúi að titillinn gefi tækifæri til þess að hafa jákvæð áhrif á stærri skala. Á minni vegferð hef ég gengið í gegnum margt sem hefur mótað mig og kennt mér að gefast ekki upp á sjálfri mér. Ef ég fengi þennan titil myndi ég vilja nota hann til að hvetja aðra að trúa á sjálfa sig og fylgja sínum draumum, sama hvaðan þú kemur og hvað þú hefur gengið í gegnum.

Hvað greinir þig frá öðrum keppendum?

Við erum allar einstakar og með svo fallega, stundum erfiða sögu að baki. Við stöndum allar út á okkar eigin hátt, það fer bara eftir því við hvern fólk tengir mest. Þess vegna tel ég að það sem lætur mig standa mest út sé einfaldlega bara ég, mín reynsla, mitt sjónarhorn og hvernig ég kýs að mæta.

Hver er stærsta áskorunin sem þín kynslóð stendur frammi fyrir?

Stærsta áskorunin sem mín kynslóð stendur frammi fyrir er geðheilsa.

Hvað viltu segja við þá sem hafa neikvæða skoðun á fegurðarsamkeppnum?

Fyrir marga keppendur er þetta tækifæri til að byggja upp sjálfstraust og nota rödd sína til þess að hafa jákvæð áhrif í samfélaginu. Fegurð er ekki bara útlit ! Fegurðin býr líka í karakternum, góðvildinni, metnaðinum, samkenndinni, heiðarleikanum og hvernig við notum tækifærin okkar til að gera eitthvað gott. Fegurðarsamkeppni er ekki keppni um útlit, heldur vettvangur til að styrkja einstaklinga og gefa þeim tækifæri til að láta gott af sér leiða.

#elsta #fimmtíu #fjögurra #systkinið #yngsta

📰 Aðrar fréttir

Motorcyclist dies after crash on TF-1 in South Tenerife
📅 25.07.2026 👁️ 0
Motorcyclist dies after crash on TF-1 in South Tenerife
A 62-year-old motorcyclist has died after losing control of his bike and leaving the road on the TF-1 motorway in Costa Adeje, south Tenerife, earlier...
Snarpar vindkviður á Aust­fjörðum og sunnan við Vatna­jökul - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 0
Snarpar vindkviður á Aust­fjörðum og sunnan við Vatna­jökul - Vísir
Þetta segir í athugasemd veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. Vindurinn geti reynst varasamt ökutækjum sem taka á sig mikinn vind. Vindkort fyrir kl. 2...
Dharmendra Pradhan, CJP: India's 'cockroach' protest called off after education minister quits
📅 25.07.2026 👁️ 0
Dharmendra Pradhan, CJP: India's 'cockroach' protest called off after education minister quits
The CJP protest has been the most visible expression of public anger against PM Narendra Modi's government in recent years.
„Vindorkunýting verður hér eins og annars staðar stoðin í grænni framtíð Íslands“
📅 25.07.2026 👁️ 0
„Vindorkunýting verður hér eins og annars staðar stoðin í grænni framtíð Íslands“
Það er þrenging frá því sem áður var að öll áform um vindmyllur yfir 30 metra hæð þurfi að fara gegnum rammaáætlun, segir forstjóri Samorku. Það liggi...
Tveir látnir eftir að flugvél lenti á húsþaki
📅 25.07.2026 👁️ 0
Tveir látnir eftir að flugvél lenti á húsþaki
Tveir eru látnir eftir að lítil flugvél hrapaði á húsþak á einbýlishúsi í Þýskalandi klukkan 11 í morgun. Þeir voru báðir farþegar í vélinni.Slysið va...
Jón Viðar fellir dóm yfir Ódys­seifs­kviðu án þess að sjá hana - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Jón Viðar fellir dóm yfir Ódys­seifs­kviðu án þess að sjá hana - Vísir
Frá þessu greinir hann í Facebook-færslu þar sem hann rekur mál sitt nokkuð ítarlega. Í færslu sinni, sem er nokkuð ítarleg, segir Jón Viðar að hann h...
More than 250,000 evacuated as wildfires rage in France and Spain
📅 25.07.2026 👁️ 1
More than 250,000 evacuated as wildfires rage in France and Spain
Spain's PM warns of "complex hours" ahead as authorities in France say they are far from bringing blazes burning near Bordeaux under control.
Bráð veikindi og al­elda bíll við Kambana - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Bráð veikindi og al­elda bíll við Kambana - Vísir
Þetta staðfestir Einar Sigurjónsson aðalsvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi í samtali við fréttastofu. „Þarna var í rauninni bara bráðaveikindati...
Þyrlan kölluð út vegna veikinda á Suðurlandi
📅 25.07.2026 👁️ 1
Þyrlan kölluð út vegna veikinda á Suðurlandi
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á Suðurlandi rétt fyrir klukkan 15 til að sinna sjúkraflugi. Þetta staðfestir Magnús Pálmar Jónsson, aðgerðast...
Kviknaði í bíl fyrir ofan Kambana
📅 25.07.2026 👁️ 1
Kviknaði í bíl fyrir ofan Kambana
Slökkvilið var kallað út vegna bíls sem stóð í ljósum logum á Hellisheiði á fjórða tímanum í dag. Búið er að slökkva eldinn.Þetta staðfestir Halldór Á...
Komst undan á­samt fjöl­skyldunni - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Komst undan á­samt fjöl­skyldunni - Vísir
Þetta segir Áskell Harðarson sem flúði heimilið sem hann dvaldi í ásamt fjölskyldu sinni í úthverfi Bordeaux-borgar vegna gróðurelda sem nálguðust. Al...
Police investigate donations by Richard Tice company to Reform UK
📅 25.07.2026 👁️ 1
Police investigate donations by Richard Tice company to Reform UK
Britain Means Business, owned by the party’s deputy leader Richard Tice, made two donations of £250,000 in the run-up to the 2024 general election.
Cairngorm residents say wildfire response 'too slow'
📅 25.07.2026 👁️ 1
Cairngorm residents say wildfire response 'too slow'
Nethy Bridge residents were evacuated on Friday and a major incident was declared.
Allt að sex sinnum lengri bið á vellinum
📅 25.07.2026 👁️ 1
Allt að sex sinnum lengri bið á vellinum
Landamæraeftirlit með farþegum sem koma utan Schengen-svæðisins getur tekið allt að sex sinnum lengri tíma en áður. Viðbótarfjármagn og aukamannskapur...
Kallaði til lögreglu vegna ástands hundapassara
📅 25.07.2026 👁️ 0
Kallaði til lögreglu vegna ástands hundapassara
Kallaði til lögreglu vegna ástands hundapassara Bono fannst laus í hverfinuHvetur hundaeigendur til fyllstu varkárni eftir alvarlegt atvik í gær Mynd:...
Einn látinn eftir að flug­vél endaði á hús­þaki - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Einn látinn eftir að flug­vél endaði á hús­þaki - Vísir
Minnst einn lést þegar lítil flugvél hafnaði á húsþaki heimilis í Ganderkesee í norðurhluta Þýskalands í dag.
Laganemi ákærður vegna sprengju sem fannst á Írlandi
📅 25.07.2026 👁️ 1
Laganemi ákærður vegna sprengju sem fannst á Írlandi
25 ára laganemi hefur verið ákærður í tengslum við sprengju sem fannst nærri landamærum Norður-Írlands og Írlands á miðvikudag. Maður á fimmtugsaldri ...
Hjálpaði mág­konu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Hjálpaði mág­konu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ - Vísir
Þetta segir skurðhjúkrunarfræðingur sem starfar í Noregi en er nú stödd í Alcorcón á Spáni þar sem systir eiginmanns hennar býr en það er í um tuttugu...
Skiptir krabbameinsmeðferðinni í fjóra leik­hluta - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Skiptir krabbameinsmeðferðinni í fjóra leik­hluta - Vísir
Frá því hún greindist í mars hefur baráttuhugur og elja einkennt nálgun hennar á veikindin. Hún hefur skipt meðferðarferlinu upp í fjóra leikhluta, se...
Ekki ó­sann­gjarnt gagn­vart sjálfri sér heldur börnunum - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Ekki ó­sann­gjarnt gagn­vart sjálfri sér heldur börnunum - Vísir
Frá því hún greindist í mars hefur baráttuhugur og elja einkennt nálgun hennar á veikindin. Hún hefur skipt meðferðarferlinu upp í fjóra leikhluta, se...
Sigmundur Ernir skrifar: Þjóðernisöfgahyggja er ákall um afturför
📅 25.07.2026 👁️ 1
Sigmundur Ernir skrifar: Þjóðernisöfgahyggja er ákall um afturför
Æði margir afturhaldsseggirnir eru með böggum hildar að afloknu heimsmeistaramótinu í knattspyrnu út af fjölda þeldökkra fótboltasnillinga sem léku li...
Frægustu fasteignaviðskipti sögunnar
📅 25.07.2026 👁️ 1
Frægustu fasteignaviðskipti sögunnar
Frægustu fasteignaviðskipti sögunnar Fyr­ir rétt­um 400 ár­um keyptu nið­ur­lensk­ir kaup­menn sér eyju. Þau kaup áttu eft­ir að draga dilk á eft­ir s...
Þriðjungur foreldra kennir meðferðaraðilum um rofin tengsl við börnin
📅 25.07.2026 👁️ 1
Þriðjungur foreldra kennir meðferðaraðilum um rofin tengsl við börnin
Um þriðjungur foreldra sem hafa misst samband við fullorðin börn sín telur að meðferðaraðili barnsins hafi haft áhrif á ákvörðun þess um að slíta sams...
Ísland þarf að breyta fjarskiptalögum til að „Chat Control 1“ taki gildi
📅 25.07.2026 👁️ 1
Ísland þarf að breyta fjarskiptalögum til að „Chat Control 1“ taki gildi
Reglugerð Evrópusambandsins sem heimilar tæknifyrirtækjum að skanna einkaskilaboð í leit að barnaníðsefni hefur verið samþykkt í sameiginlegu EES-nefn...
Fagna „heim­komu“ Baldurs eftir margra vikna fjar­veru - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Fagna „heim­komu“ Baldurs eftir margra vikna fjar­veru - Vísir
„Hvatinn að þessu var að sjálfsögðu sá að Baldur hefur ekki siglt hérna yfir Breiðafjörðinn til Brjánslækjar, bara Stykkishólms, í sex vikur vegna þes...
„Við á­kváðum að snúa bara vörn í sókn“ - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
„Við á­kváðum að snúa bara vörn í sókn“ - Vísir
„Hvatinn að þessu var að sjálfsögðu sá að Baldur hefur ekki siglt hérna yfir Breiðafjörðinn til Brjánslækjar, bara Stykkishólms, í sex vikur vegna þes...
Stríð Trumps gegn hryðjuverkum öfgavinstrimanna nær alþjóðlegu stigi
📅 25.07.2026 👁️ 1
Stríð Trumps gegn hryðjuverkum öfgavinstrimanna nær alþjóðlegu stigi
Stríð Trumps gegn hryðjuverkum öfgavinstrimanna nær alþjóðlegu stigi Fréttin25. júlí 2026Erlent, Hryðjuverk, TrumpLeave a Comment Donald Trump Bandarí...
Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins - Vísir
Guðrún Gunnlaugsdóttir hefur starfað sem ljósmóðir og hjúkrunarfræðingur hjá Landspítalanum í áratugi og skrifaði á dögunum skoðanagrein á Vísi þar se...
Rússland tryggir sér sigur í Úkraínudeilunni – John Mearsheimer
📅 25.07.2026 👁️ 1
Rússland tryggir sér sigur í Úkraínudeilunni – John Mearsheimer
Rússland tryggir sér sigur í Úkraínudeilunni – John Mearsheimer Fréttin25. júlí 2026Erlent, ÚkraínustríðiðLeave a Comment John Mearsheimer, sérfræðing...
Ítarleg svissnesk rannsókn leiðir í ljós að Hamas eyddi árum í að byggja upp virkt hryðjuverkanet um alla Evrópu
📅 25.07.2026 👁️ 1
Ítarleg svissnesk rannsókn leiðir í ljós að Hamas eyddi árum í að byggja upp virkt hryðjuverkanet um alla Evrópu
Ítarleg svissnesk rannsókn leiðir í ljós að Hamas eyddi árum í að byggja upp virkt hryðjuverkanet um alla Evrópu Fréttin25. júlí 2026Erlent, Hryðjuver...
Kolefnisgjaldið sem drepur allt
📅 25.07.2026 👁️ 1
Kolefnisgjaldið sem drepur allt
Kolefnisgjaldið sem drepur allt Fréttin25. júlí 2026Evrópusambandið, Geir Ágústsson, Innlent, SamgöngurLeave a Comment Geir Ágústsson skrifar: Haft ef...
„Þetta er búið að vera athyglisverður sólarhringur“
📅 25.07.2026 👁️ 1
„Þetta er búið að vera athyglisverður sólarhringur“
„Þetta er búinn að vera athyglisverður sólarhringur. Við vöknuðum í gær í glampandi sól og blíðu, eins og næstum hvern einasta dag síðustu þrjár vikur...
Utanríkisráðuneyti á villigötum
📅 25.07.2026 👁️ 1
Utanríkisráðuneyti á villigötum
Utanríkisráðuneyti á villigötum Fréttin25. júlí 2026Björn Bjarnason, Evrópusambandið, Innlent, StjórnmálLeave a Comment Björn Bjarnason skrifar: Inngr...
Bobby Fischer og fyrri ESB-umsókn Íslands
📅 25.07.2026 👁️ 1
Bobby Fischer og fyrri ESB-umsókn Íslands
Bobby Fischer og fyrri ESB-umsókn Íslands Fréttin25. júlí 2026Fjölmiðlar, Innlent, Páll VilhjálmssonLeave a Comment Bobby Fisher heitinn. Páll Vilhjál...
Eldur í sumarbústað rétt fyrir utan höfuðborgina
📅 25.07.2026 👁️ 1
Eldur í sumarbústað rétt fyrir utan höfuðborgina
Þrír slökkviliðsbílar voru kallaðir út vegna elds í sumarbústað laust eftir klukkan 12 í dag. Bústaðurinn er alelda. Þetta staðfestir Guðmundur Hreins...
Eldur í sumar­bú­stað við Suður­lands­veg - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Eldur í sumar­bú­stað við Suður­lands­veg - Vísir
Þrír slökkviliðsbílar voru sendir á vettvang þar sem er þó nokkur viðbúnaður og unnið að því að ráða niðurlögum eldsins. Þetta staðfestir aðalvarðstjó...
Andy Burnham to appear on Sunday with Laura Kuenssberg
📅 25.07.2026 👁️ 1
Andy Burnham to appear on Sunday with Laura Kuenssberg
See inside Andy Burnham's first week in charge, with an exclusive behind the scenes look with Laura Kuenssberg.
Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli ver­búð - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli ver­búð - Vísir
Lísbet Guðmundsdóttir fornleifafræðingur stýrir uppgreftinum og segir að um sé að ræða verstöð sem var í notkun frá elleftu öldinni og fram á þá átján...
Sveinn Andri Sveinsson: Ólafur Ragnar hefur aldrei verið spámannlega vaxinn
📅 25.07.2026 👁️ 1
Sveinn Andri Sveinsson: Ólafur Ragnar hefur aldrei verið spámannlega vaxinn
Nei-hópurinn hefur verið háværari en já-hópurinn en fyrir því er góð ástæða. Skilaboð já-hópsins eru einföld og mjög skýr og snýst um að þjóðin veiti ...
Ís­lendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Ís­lendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum - Vísir
Þá heyrum við frá lögrelunni um alvarlega líkamsárás sem varð í Reykjavík í nótt þar sem manni var fleygt fram af svölum. Einnig tökum við stöðuna á B...
Vindmyllur á Héraði í rammaáætlun
📅 25.07.2026 👁️ 1
Vindmyllur á Héraði í rammaáætlun
Áform Orkusölunnar um að reisa tvær vindmyllur við Lagarfossvirkjun á Héraði hafa vakið úlfúð í nærsamfélaginu. Heimastjórn leggst gegn framkvæmdinni ...
Fleiri en þeir sem tókust á lentu í á­tökum ung­menna - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Fleiri en þeir sem tókust á lentu í á­tökum ung­menna - Vísir
„Það endar með því að verða þarna átök milli einhverra, nokkurra ungmenna,“ segir Heimir Ríkarðsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuð...
Fleeing a wall of flames: Tourists describe France wildfires escape
📅 25.07.2026 👁️ 1
Fleeing a wall of flames: Tourists describe France wildfires escape
Families visiting France from the UK and elsewhere have told the BBC how their holidays have become evacuation missions.
Áttu eitt­hvað van­talað við manninn sem endaði fram af svölunum - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Áttu eitt­hvað van­talað við manninn sem endaði fram af svölunum - Vísir
Þetta segir Heimir Ríkarðsson aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. „Það komu þarna tveir að heimili þessa manns, og töldu s...
Ættum ekki að flytja inn mistök annarra þjóða
📅 25.07.2026 👁️ 1
Ættum ekki að flytja inn mistök annarra þjóða
Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, óttast að ef erlendri fjárfestingu verði hleypt inn í íslenskan sjáva...
„Það sem þið gerið mun móta framtíð íslams á Íslandi næstu 300 árin“
📅 25.07.2026 👁️ 1
„Það sem þið gerið mun móta framtíð íslams á Íslandi næstu 300 árin“
Bandaríski íslamski fræðimaðurinn og prédikarinn Yasir Qadhi heimsótti Ísland á dögunum og ávarpaði þar söfnuð múslima. Í ræðunni hvatti hann múslima ...
Vopnfirðingar vitjuðu minninganna á einstakri ljósmyndasýningu
📅 25.07.2026 👁️ 1
Vopnfirðingar vitjuðu minninganna á einstakri ljósmyndasýningu
Það ríkti alveg sérstök stemning, hlaðin gleði og ljúfum minningum, þegar Vopnfirðingar fjölmenntu á ljósmyndasýninguna „Þorpið“ sem var haldin var í ...
Þurfti að æfa glímu í stað fimleika
📅 25.07.2026 👁️ 1
Þurfti að æfa glímu í stað fimleika
Þurfti að æfa glímu í stað fimleika Guðný Helga Sæ­mundsen seg­ir sveita­líf­ið hafa mót­að sig mest. Þar hafi ein­fald­leiki lífs­ins orð­ið til þess...
Segir hundaeigendur í vonlausri stöðu á leigumarkaði – „Ég bið fólk um að opna hugann og slaka á fordómunum“
📅 25.07.2026 👁️ 1
Segir hundaeigendur í vonlausri stöðu á leigumarkaði – „Ég bið fólk um að opna hugann og slaka á fordómunum“
„Ef maður fer inn á Igloo þá koma kannski upp 500 möguleikar en þegar maður hakar við „gæludýr leyfð“ í filter þá eru möguleikarnir kannski bara tveir...
Brutust inn um glugga og hentu manni fram af svölum
📅 25.07.2026 👁️ 1
Brutust inn um glugga og hentu manni fram af svölum
Tveir menn sem voru handteknir fyrir að henda manni fram af svölum á fyrstu hæð í gærkvöld komust inn í íbúð hans í gegnum glugga. Maðurinn hafði neit...