Áform um lagasetningu er varðar frumvarp til laga um samfélagsmiðlabann fyrir ungmenni undir 15 ára aldri voru nýlega kynnt í samráðsgátt stjórnvalda. Í tilkynningunni segir að með þessum hætti sé verið að bregðast við vaxandi hættu sem börnum og ungmennum stafar af ótímabærri, óheftri og áráttukenndri notkun samfélagsmiðla.
Heimilt að fá aðgang á 15. aldursári
Verði frumvarpið samþykkt verður börnum undir 15 ára aldri meinaður aðgangur að samfélagsmiðlum fram til 1. janúar það ár sem barnið nær 15 ára aldri. Ekki er gert ráð fyrir því að börn hljóti refsingu verði brotið gegn reglunum heldur verður þetta sett fram sem almennt verndarákvæði.
Í tilkynningu ráðuneytisins segir að þegar hafi verið haft samráð við börn, ungmenni og ýmsa hagaðila vegna málsins.
„Í því samráði hefur komið fram skýr vilji til að efla vernd barna í stafrænu umhverfi en jafnframt að mikilvægt sé að lausnir verði mótaðar með hliðsjón af réttindum barna, meðalhófi, fræðslu, miðlalæsi og ábyrgð foreldra, stjórnvalda og þjónustuveitenda.“
Önnur lönd brugðið á sama ráð
Önnur lönd hafa þegar gripið til svipaðra aðgerða. Ástralía varð í desember í fyrra fyrsta landið til þess að meina börnum yngri en 16 ára aðgang að samfélagsmiðlum. Kanada, Indónesía og Sameinuðu arabísku furstadæmin hafa síðan fylgt fordæmi Ástrala og gripið til sambærilegra aðgerða.
Í síðasta mánuði tilkynntu stjórnvöld í Bretlandi að börnum undir 16 ára yrði bannað að nota samfélagsmiðla frá og með ársbyrjun 2027. Eins stendur til að loka fyrir samfélagsmiðlaaðgang 16 og 17 ára barna á nóttunni.