Leikarinn Jason Sudeikis hefur opnað sig um stefnumótalífið eftir að leiðir skildu hjá honum og leikkonunni Oliviu Wilde fyrir sex árum. Í hlaðvarpinu Friends Keep Secret sagði hinn fimmtugi leikari að það gæti verið yfirþyrmandi að koma sér aftur út á „markaðinn“ og að stefnumótalífið hafi ekki alltaf verið auðvelt.
Þegar hann var spurður að því hvort hann gæti hugsar sér að eignast fleiri börn svaraði hann því játandi en aðeins ef hann yrði ástfanginn aftur. Sudeikis á tvö börn með Wilde, soninn Otis Alexander, tólf ára, og dótturina Daisy Josephone, níu ára.
Sudeikis sagði að einhleypa lífið hefði bæði kosti og galla.
„Mér finnst gott að vera í sambandi við fólk,“ sagði hann. „Ég er hins vegar ekki á þeim stað í lífinu að mér finnist gott eða gefandi að hitta marga í einu. Það finnst mér frekar yfirþyrmandi, sérstaklega þar sem ég er foreldri.“
Sudeikis lagði áherslu á að börnin hans væru í fyrsta sæti.
„Allir sem ég hitti vita að þeir verða aldrei númer eitt á forgangslistanum. Börnin eru það,“ sagði hann.
Hann sagði einnig að með aldrinum hefði hann áttað sig á mikilvægi þess að hugsa vel um sjálfan sig.
„Ég þarf að passa að bollinn minn sé fullur svo ég geti gefið öðrum afganginn.“
Sudeikis og Olivia Wilde kynntust árið 2011 í þættinum Saturday Night Live. Þau trúlofuðu sig árið 2013 þegar Sudeikis bað hennar með trúlofunarhring frá París frá árinu 1920.
Þrátt fyrir að þau hafi slitið samvistum árið 2020 hafa þau náð góðu samstarfi sem foreldrar. Árið 2023 komust þau að samkomulagi um sameiginlega forsjá barna sinna og samkvæmt heimildum búa þau bæði í Los Angeles og sinna uppeldinu saman með farsælum hætti. Í apríl 2025 sáust þau saman á leikvelli í Los Angeles þar sem þau fylgdu börnum sínum og virtust eiga góð samskipti.