Enska knattspyrnufélagið Liverpool hefur staðfest að franski varnarmaðurinn Ibrahima Konaté muni yfirgefa félagið í sumar.
Samningur Konaté rennur út í sumar en Liverpool hefur ekki náð samkomulagi við Frakkann um nýjan samning.
Konaté gekk í raðir Liverpool frá RB Leipzig árið 2021. Hjá Liverpool vann hann ensku úrvalsdeildina og bikarinn einu sinni og deildabikarinn tvisvar.