2473 tilfelli af ebólu hafa greinst í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó síðan faraldri var lýst yfir um miðjan maí. 999 hafa látist af völdum ebólu í landinu. Í nágrannaríkinu Úganda hafa 20 tilfelli og tvö dauðsföll verið skráð. Þetta kemur fram í yfirliti sem Alþjóðaheilbrigðisstofnunin birti í dag.
Neyðarástandi var lýst yfir þann 15. maí eftir fjölda dauðsfalla í Ituri í norðausturhluta Kongó. Þetta er í sautjánda skiptið sem ebólafaraldur geisar í landinu.
Erfiðlega hefur gengið að ráða við faraldurinn með smitrakningu, bæði vegna mikillar fátæktar á svæðinu og ofbeldis, að sögn Trish Newport, stjórnanda neyðaraðgerða hjá Læknum án landamæra í Bunia, höfuðborg héraðsins.
Sumir hinna látnu séu grafnir af fjölskyldumeðlimum án nokkurra smitvarna. Það flýti fyrir útbreiðslu smita.
„Eitt dauðsfall getur leitt til allt að 17 tilfella,“ segir Newport.
Ebólusmit hafa greinst í fjórum öðrum héruðum í Kongó. Flest tilfellin sem komu upp í Úganda voru almennir borgarar sem komu yfir landamærin frá Kongó. Yfirvöld segjast ekki hafa greint ný smit í þrjár vikur.
Tedros Ghebreyesus, forstjóri Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar, sagði í síðustu viku að faraldurinn hefði breiðst hraðar út en fyrri faraldrar.
Þrátt fyrir aukin viðbrögð við faraldrinum sé hann enn á undan og heilbrigðisfólk sé ekki búið að ná utan um hann, að sögn Thierno Balde, hjá stofnuninni.
Enn sem komið er hafa engin lyf við þessu afbrigði ebóluveirunnar, Bundibugyo-afbrigðinu, verið samþykkt. Nokkur bóluefni eru í þróun.