Flóttamenn sem hafa dáið eða horfið frá árinu 2014 eru nú komnir yfir 80 þúsund. Um 7.900 dóu eða hurfu á flótta í fyrra samkvæmt tölum sem Flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna sendi frá sér í morgun.
Í tilkynningu frá stofnuninni segir að fólk sé neytt í hættuför þegar öruggar leiðir eru ekki fyrir hendi. Stjórnvöld eru hvött til að sýna pólitískan vilja til að bjarga fleiri mannslífum á þessum leiðum.
Þá segir jafnframt að þessar tölur séu aðeins lægstu mörkin í fjölda þeirra sem verða fyrir þessu, en engu að síður sýni þær þörfina fyrir tafarlausar aðgerðir til að binda enda á dauða flóttamanna.
Í tilkynningunni er jafnframt bent á að á síðasta ári hafi niðurskurður til hjálparstarfs verið fordæmalaus og upplýsingar um hættulegar leiðir verið af skornum skammti. Hvort tveggja geri það að verkum að vandinn sé ekki eins sýnilegur. Þá er talið að minnst 340 þúsund fjölskyldumeðlimir flóttamannanna eigi um sárt að binda vegna þessa.