Stjórnvöld í Venesúela hafa staðfest að 4.829 fórust í jarðskjálftum 24. júní. Tuga þúsunda er saknað og fólk leitar enn ástvina í rústum húsa og bygginga.
Ríflega 20 þúsund misstu heimili sín í jarðskjálftunum og hafast við í tjaldbúðum þar sem víða er skortur á vatni og fullnægjandi hreinlætisaðstöðu. Um 16.800 slösuðust í skjálftunum en flestir hafa verið útskrifaðir af sjúkrahúsum.