Í það minnsta 3.200 tilfelli ebólu hafa greinst í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó síðan faraldri var lýst þar yfir um miðjan maí.
1.405 hafa látist af völdum ebólu í faraldrinum samkvæmt opinberum tölum í landinu.
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur sagt nærri 90% allra tilfella hafa verið greind í Ituri-héraði í norðvesturhluta landsins. Héraðið liggur við landamærin að Suður-Súdan og Úganda.
Búist er við því að faraldurinn geti geisað í mánuði til viðbótar. Verkföll heilbrigðisstarfsfólks sem krefst þess að fá ógreidd laun sín hafa sett strik í reikninginn á nokkrum spítölum.