Komið var að Widdecombe látinni að heimili hennar í Suðvestur-Englandi þann 9. júlí síðastliðinn. Áhyggjur vöknuðu þegar Widdecombe mætti ekki til viðtals þann 8. júlí. Það var svo daginn eftir sem garðyrkjumaður kom að henni látinni á eldhúsgólfi heimilisins. Hún var 78 ára gömul.
Lögregla lýsti því fljótlega yfir að líkur væru á að hún hefði verið myrt og að um ætlunarverk hefði verið að ræða. Ástæður morðsins eru enn ókunnar.
Hinn tuttugu og átta ára Joshua Kerry hefur verið handtekinn og ákærður fyrir morðið. Í umfjöllun Reuters er tekið fram að Kerry sé hvítur á hörund. Málið hefur verið rannsakað sem hryðjuverk.
Í máli saksóknarans í málinu hefur komið fram að verknaðurinn hafi náðst á öryggismyndavél á heimili hennar. Ákærði kom að húsinu hennar meðan hin látna snæddi hádegisverð og spurði hana hvort hún bæri á sér bankakort eða skilríki, að því er fram kemur í máli saksóknarans. Kerry var íklæddur svörtum hönskum og bar hamar í hendi sér, sem hann huldi fyrir Widdecombe.
Kerry sló hana því næst tuttugu og einu sinni í höfuðið með hamrinum, hrinti henni í gólfið, tók veski hennar og var á bak og brott aðeins tveimur mínútum eftir að hann kom.
Fréttin er í vinnslu