„Það veldur því vonbrigðum þegar stjórnmálamenn sem þykjast bera hag atvinnulífsins fyrir brjósti hræra þessum óskyldu málum saman,“ skrifar Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, í grein sem birtist hjá Vísi í dag. Ólafur telur það ábyrgðarlaust að slá pólitískar keilur í tengslum við bókum 35 við EES-samninginn enda eigi bæði fólk og fyrirtæki að geta treyst því að samningurinn gildi eins og samið var um.
Vonsvikinn með Guðlaug Þór og Diljá Mist - „Skaðlegt ábyrgðarleysi gagnvart fólki og fyrirtækjum“