Ursula von der Leyen forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins kom til Grænlands í tveggja daga heimsókn í gær. Yfirlýstur tilgangur heimsóknarinnar er að styrkja tengslin við Norðurslóðir. Þær hafa verið þungamiðja mikillar pólitískrar spennu, meðal annars vegna síendurtekinna ummæla Donalds Trump Bandaríkjaforseta um að Bandaríkin þurfi að ná yfirráðum yfir Grænlandi.
Jens-Frederik Nielsen formaður landsstjórnar Grænlands og Mette Frederiksen forsætisráðherra Danmerkur tóku á móti von der Leyen í Nuuk og fylgja henni í heimsókninni. „Við erum fjölskylda,“ sagði von der Leyen um leið og hún kom til Nuuk í gær, sem aðeins er talinn forsmekkurinn að þeim skilaboðum sem hún ætlar að senda. Þau eiga aðallega að fela í sér að Grænland tilheyri Evrópu en ekki Bandaríkjunum.
Helsti viðburður heimsóknarinnar í gær var sigling sem von der Leyen fór í með hinum tveimur þjóðarleiðtogunum til Qoornoq, sem er skammt norður af Nuuk. Þar fékk hún leiðsögn um helstu staði bæjarins. Heimsóknin vakti mikla athygli meðal íbúa sem fögnuðu henni með grænlenska fánanum.
Von der Leyen sagði á X eftir siglinguna að hún ætlaði að kynna sérstakan samstarfspakka sem unnið hafi verið að. Financial Times greinir frá því að tilkynnt verði um tvöföldun á aðstoð Evrópusambandsins til Grænlands, í 530 milljónir evra (75 milljarðar íslenskra króna) á árunum 2028-2034. Að auki verði kynnt 200 milljóna evra aukaaðstoð.
Í dag hefst einnig NATO-heræfingin Arctic Shield á Grænlandi. Hermenn frá 10 NATO-ríkjum taka þátt í henni.