Ekki er útlit fyrir sól og blíðu á höfuðborgarsvæðinu á komandi dögum.
Þetta segir Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur.
„Það er að koma hér upp að okkur bæði hlýtt og rakt loft, ættað úr suðri og það kemur til með að rigna frá því flesta daga á Vesturlandi, sérstaklega á annnesjum vestanlands og sunnanverðum Vestfjörðum. Þar er spáð rigningu flesta daga, næstu tíu daga eða svo,“ segir Einar í samtali við mbl.is.
Ekki von á sól í borginni
Eru líkur á einhverjum sólardögum í höfuðborginni?
„Það er ekki að sjá, það rignir nú ekki alla dagana en það verður úrkoma þó að hún sé mest á Vesturlandi.“
Á tíu daga meðalspá frá Evrópsku reiknimiðstöðinni er gert ráð fyrir því að úrkomumagn gæti orðið allt að nífalt það sem gerist í meðalári að jafnaði yfir tíu daga um þetta leyti árs, að því er Einar greinir frá.
Hann segir að áfram verði nokkuð hlýtt á Austfjörðum eins og hefur verið undanfarna daga.
„Ef menn ætla að hitta á sól og hita er helst að gera það á Austurlandi og Suðausturlandi þegar frá líður.“
